Sælir, það kom upp vandamál í bílnum hjá mér að miðstöðin blæs engu lofti, sama hver stillingin er á miðstöðvar elementinu.
Ég athugaði hvort öryggi væri farið en, það var í lagi. Það skiptir engu máli hvort bíllinn sé heitur eða kaldur, hún blæs engu lofti.
Veit ekki hvort það skipti eitthverju máli, en þetta er tvískipt digital miðstöð.
Ef eitthver lumar á ráði við þessu væri það vel þegið.
Fyrir fram þökk, Guðni.
