Ég hef verið að reyna að tengjast wifi með fína símanum mínum en án árangurs.
Fyrst grunaði mig að það væri útaf gömlu sim korti svo ég fór í Nova og fékk þar nýtt kort. Gat tengst netinu þar strax og taldi málið úr sögunni.
Svo kem ég á heimili bæði með wireless frá Símanum og Vodafone og eftir að ég hef valið tenginguna og slegið inn aðgangskóðann hangir þetta bara á 'obtaining IP address', wifi táknið sést dauft efst á skjánum og á endanum dettur það út.
Ég hef aldrei átt í vandræðum með að tengjast nýjum úti, hvort sem þau eru opin eða ekki.
Dettur einhverjum í hug hver vandinn sé og helst hvernig ég nái að fixa þetta?



