Er að leita að X5 verðbil að 3mill.

Hér getur þú auglýst eftir BMW bílum.

Er að leita að X5 verðbil að 3mill.

Postby poco » Wed 12. Oct 2011 14:26

Er að leita mér að X5 og skoða allt. Er með 523 ´97 til að setja uppí og beinharða peninga.
Hef verið að skoða það sem er í boði á sölum en tek öllum ábendingum og tillögum fagnandi.

Ég er að s.s að bjóða uppí, E-39 523 ´97.
Ég setti í hann angel-eyes frá Hella og "glær"afturljós. Hann er ekinn um 174þ. Engin "þjónustusaga" en hann hefur fengið olíu og síur á eðlilegu millibili. Hann er ekki með hvarfakút (lét fjarlægja hann þegar hann bilaði (aukin öfl og hef ekki fengið athugasemdir varðandi það í skoðun). Ég setti nýja bremsudiska að framan f. 3 árum. Snemma í vor skipti ég um kerti, ventlapakkningu. Einnig bremsudiska, bremsurör að aftan, alla klossa og allt handbremsubracketið (barki, borðar, gormar...) og bensínsýju. Í seinasta mánuði lét ég skipta um sveifarásskynjara og abs-skynjara í hægra-fram hjóli.
Seinustu 2 eyðslumælingar sýndu um 13 og svo 12 í hreinum innanbæjarakstri.
Það byrjaði að koma fram ryð við klassíska ryðstaði fyrir 2 árum sem hefur lítið dreift sér (hjólaskálar, undir skottloki, í bensínloki og blettur undir vinstir hlið og rúðuþurrkuörmum).
Það er lítið nuddsár á vinstraafturhorni (stuðara).
Bíllinn var fluttur inn frá Þýskalandi frá öðrum eiganda, ég er 2. eigandi hérna heima. Ég keypti hann árið 2003 til að eiga hann sem lengst og hef hugsað um hann m.t.t. þess.
Hann er á 16" original álfelgum með ársgömul Goodyear heilsársdekkjum (ók á þeim allan seinasta vetur). 15" Bridgestone blizzak vetradekk (loftbóludekk) á stálfelgum eru til fyrir meiri "vetrarhörku".
Hann fékk ´12 skoðun í gær með eina athugsemd um að hann mengaði aðeins of mikið.
Topplúga (með smá pikkless). Skíðapoki í skottinu. "Sportstýri". Dökkgrá "viðar"innrétting (virkilega flott en ég þoli ekki "natural"viðarlit í innréttingum). Pluss-sæti (sem eiga að vera e-ð sérstaklega sportý, kann ekki að útskýra en bæklingurinn er í handskahólfinu).
Ekkert pixla vesen í mælaborði. Hann er með þessu stórkostlega kasettutæki (manstu hvað það er ;) en setti í hann 6cd-magasín sem er staðsett í skottinu og tengt í útvarpsrás.
Fyrir utan þetta er þetta einstaklega vel útlítandi 14 ára gamall bíll sem hefur vakið athygli fyrir gott útlit og hefur hann reynst mér einstaklega vel.

P.s. Ef einhver vill kaupa hann án þess að bjóða mér X5 þá er það að sjáflsögðu velkomið.
Last edited by poco on Sat 22. Oct 2011 00:10, edited 3 times in total.
'88 Drusla
'88 Drusla
'99 Ekki eins mikil en samt drusla
'97 BMW 523 E39
'04 BMW X5 E53
User avatar
poco
Kassabílstjóri
 
Posts: 104
Joined: Sat 15. Nov 2003 21:20

Re: Er að leita að X5 verðbil að 2,5mill.

Postby artistik » Wed 19. Oct 2011 17:21

artistik
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 62
Joined: Tue 02. Aug 2011 08:06

Re: Er að leita að X5 verðbil að 2,5mill.

Postby HAMAR » Wed 19. Oct 2011 18:54

Hér er minn til sölu

http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1

Glæný vetrar og sumardekk,
ATH: þetta er bara ásett verð (ég vil fá 18.000.000 kr.fyrir hann), er opinn fyrir tilboðum.
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(
User avatar
HAMAR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2232
Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Location: ókunnug.

Re: Er að leita að X5 verðbil að 3mill.

Postby poco » Wed 19. Oct 2011 23:54

Hamar! Þetta er sérstaklega fallegur bíll!
'88 Drusla
'88 Drusla
'99 Ekki eins mikil en samt drusla
'97 BMW 523 E39
'04 BMW X5 E53
User avatar
poco
Kassabílstjóri
 
Posts: 104
Joined: Sat 15. Nov 2003 21:20


Return to Vil kaupa - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 6 guests