Í sambandi við spacera lengd á boltum

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Í sambandi við spacera lengd á boltum

Postby Hrannar E. » Tue 18. Oct 2011 20:02

Þannig er það að ef ég ætla að skella undir bílinn hjá mér spacerum, sem eru sem dæmi 17mm þurfa þá boltarnir að vera 17mm lengri en original ?

Væri fínt að fá þetta á hreint þar sem ég ætla að skella spacerum undir hjá mér með vetrarfelgunum og boltarnir sem ég fékk með þessu finnst mér svo ofurlangir einhvað. Allavega 2,5-3cm lengri en original.
BMW e39 540i 2000
Hrannar E.
Getawaybílstjóri
 
Posts: 595
Joined: Tue 21. Oct 2008 19:45

Re: Í sambandi við spacera lengd á boltum

Postby Stefan325i » Wed 19. Oct 2011 14:05

Já það er rétt hjá þér, ég fékk lengri bolta í bílinn hjá mér hjá Hjólbarðahöllini sem ég stitti svo sjálfur í réttar lengdir.
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning
User avatar
Stefan325i
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2596
Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Location: Milemarker 85.

Re: Í sambandi við spacera lengd á boltum

Postby gunnar » Wed 19. Oct 2011 15:06

Myndi samt athuga hvort það eigi þetta ekki einhver annar en N1.

Var hjá þeim um daginn og það kostaði alveg handlegg hver bolti man ég.

Vantaði bara einn en ég man að ég hugsaði ef mig hefði vantað 20 eða 16 stk (5x120 - 4x100) þá hefði ég ekki alveg verið tilbúinn til að kyngja því.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: Í sambandi við spacera lengd á boltum

Postby Hrannar E. » Wed 19. Oct 2011 18:24

gunnar wrote:Myndi samt athuga hvort það eigi þetta ekki einhver annar en N1.

Var hjá þeim um daginn og það kostaði alveg handlegg hver bolti man ég.

Vantaði bara einn en ég man að ég hugsaði ef mig hefði vantað 20 eða 16 stk (5x120 - 4x100) þá hefði ég ekki alveg verið tilbúinn til að kyngja því.



Keypti einmitt hjá þeim um daginn 10 lengri bolta og það verð var rugl hátt!

Þannig að það munar bara um lengdina sem spacerinn er ?
BMW e39 540i 2000
Hrannar E.
Getawaybílstjóri
 
Posts: 595
Joined: Tue 21. Oct 2008 19:45

Re: Í sambandi við spacera lengd á boltum

Postby JonFreyr » Sun 23. Oct 2011 06:56

Það kom fyrir hjá mér að Schmiedmann seldi mér lengri bolta en ég þurfti og það varð til þess að boltarnir náðu að naga bakplötuna fyrir innan bremsudiskana. Þannig að alls ekki kaupa þér of langa bolta, 17mm spacer kallar ekki á mikið meira en 17mm lengri bolta og það dugar léttilega að nota 16mm lengri bolta. Feykinóg að 2 gengjur komi í gegnum allt dótið þegar það er búið að herða á þessu.
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image
User avatar
JonFreyr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1783
Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Location: Kaupmannahöfn


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 6 guests