Ég á einn X5 bíl (2005 4.4 V8) búinn að eiga hann í 3 ár og það eina sem hefur bilað eru loftpúðarnir í framfjöðrun og húddbarki.
Ég er búinn að keyra minn bíl 40.000 km. og er hann búinn að vera einstaklega áræðanlegur og ''vesenfrír''.
Einn leiðinlegur galli er samt að hrjá bílinn eins og fleiri BMW bíla, hurðarlæsingarnar geta verið leiðinlegar í frosti,
alltaf hægt að opna hurðirnar en þær lokast ekki aftur.
Það á nú að vera lítið mál samt að fyrirbyggja þetta vandamál með lásaolíu og framtakssemi

Eyðslan á bílnum er eins og fram hefur komið ca.15.5 l/100 innanbæjar og ca.10 l/100 utanbæjar.