Spenna í stýrisbúnaði á E92

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Spenna í stýrisbúnaði á E92

Postby thisman » Wed 12. Oct 2011 09:50

Hef lent í því nokkrum sinnum þegar ég bakka og beygi í leiðinni (til vinstri) að það kemur dálítið högg á stýrisbúnaðinn; tilfinning eins og það sé að losna um einhverja spennu sem myndast hafi einhversstaðar. Ég get hinsvegar ekki séð að þetta hafi nein áhrif og ég hef ekki fundið fyrir neinu í akstri, stýrið crispy og nákvæmt. Einhver sem hefur hugmynd hvað gæti valdið þessu eða lent í einhverju svipuðu?

Fer annars með hann í Eðalbíla í næstu viku út af skynjaraskiptum og fæ þá til að renna snöggt yfir þetta í leiðinni. Datt bara í hug að tékka á ykkur með þetta.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests