Bílskúrinn er gjörsamlega troðinn þessa stundina, helling af dóti og 7 pinball kassar. Það verður allavega nóg að gera í vetur. Má eiginlega segja að þetta sé algjört draumaáhugamál, blanda af járni, mekkaníki, rásum, transistorum, timbri, málningu, ryki og ryði.
Það er búið að vera mikið bras að leita kassana uppi, auglýsa á auglýsingavefjunum ásamt fréttablaðinu, síðan er að koma þeim í hús. Þá byrjar fjörið að sjá hvað er að og hvaða varahluti vantar. Það er ekkert grín að finna suma hluti, en nánast allir slithlutir eru auðfundnir. Kassarnir eru tiltölulega basic, á sínum tíma lærði ég rafeindavirkjun, kláraði sveinsprófið en vann svo aldrei að viti í faginu nema að klára samninginn. Þannig þetta er fínasta heads up í því dóti. Tíminn sem fer í hvern kassa er frá þrem dögum upp í 1-2 mánuði, bara svona dunda sum kvöld. Það er mjög sterkt í þessu ameríska dóti, sumir kassana hafa hreinlega verið í tætlum. Hingað til hef ég eingöngu verið að vinna í pinball kössunum, eftir áramót er planið að vinna í arcade kössunum. Sumir fara reyndar eflaust á haugana.
Hér er grein sem birtist í mogganum síðustu helgi, veit ekki alveg með fyrirsögnina en hitt er fínt
Annars er hugmyndin að leigja þá út næstu árin til að hafa upp í einhvern kostnað.. ef þú kæri lesandi[smá plögg hérna] veist um starfsmannaaðstöðu eða hentuga staðsetningu þá endilega láta mig vita. Hér er yfirlit fyrir alla kassana..





Vá þetta er snilld.



