gjonsson wrote:Búinn að brasa eitthvað í honum í vetur?
Lítið búinn að brasa í vetur enda fékk ég bílinn í fínu standi frá þér!
Er þó búinn að setja í hann svart útvarp í staðin fyrir það silfurlitaða.
Ætla að reyna að laga það litla sem var að fyrir vorið.
Mig langar að mörgu leiti að halda bílnum eins og hann er.
Maður er samt alltaf að spá og spekúlera hvort lítilvægar útlitsbreytingar myndu ekki gera gott.
Hlutir sem ég er að spá í eru t.d:
Svört nýru
M speglar
Dökk stefnuljós að framan
Dökk stefnuljós að aftan
M hliðarlistar (helst án M merkis)
M sílsar
Kannski er það bara bull að gera eitthvað annað, halda bílnum bara alveg orginal. En það sakar ekki að pæla.
Hafa menn skoðun á þessu?
Nökkvi
BMW E36 Alpina B3 3,0 cabrio
Seldir: BMW E46 328i '99, BMW E39 540i '96, Audi Cabrio 2,0 '93, BMW E36 325i Coupé '93
