Sælir, er með eina spurningu sem einhver hérna getur vonandi svarað.
Er á E36 316i, 1995 árgerð, og hann er farinn að hegða sér frekar undarlega þegar ég tek af stað.
Semsagt þegar ég keyri af stað, og ýti niður bensíngjöfinni, þá eiginlega "hikstar" hann áfram, þeas. hann revvar upp og skýst áfram
og revvar aftur niður, svo revvar hann aftur aðeins hærra og skýst áfram.
Það er nokkurn veginn hægt að minnka þetta með kúplingunni en þetta er samt frekar fáránlegt.
Hann er líka rosa slappur í gang, þeas. hann snýst og snýst og rétt síðan nær að starta, svo rokkar hann aðeins niður og upp aftur í snúningum þangað til hann jafnar sig út.
Þetta gerist ekki þegar maður drepur á honum og kveikir aftur þegar hann er heitur.
Einhver með hugmynd um hvað málið gæti verið?


