Þakka hrósið
Jæjja þá er það pústvinnan.
Átti til orginal M20b25 púskerfi, skar það til.
þurfti að búa til nýja flangsa á flækjurnar og breyta þeim.
Fór svo í GA smíðajárn og keypti 2 stk minkanir. 55mm í 45mm.
sauð þetta saman og notaðist við afganginn sem fór af M20 pústinu í að splæsa þessu saman.
Einnig útbjó ég nýjan stað fyrir O2 sensorinn en hann skiptir mjög miklu máli á M50.
Myndir segja eitthvað....
Hér er ég búinn að cut-a af M20 kerfinu og sjóða minkanirnar á flangsana fyrir m50 flækjurnar.


Hér er ég búinn að notast við efnið sem varð eftir af m20 pústinu.

Hér er búið að skera þetta til eftir bestu getu og púnkta þetta saman.

Búið að sjóða þetta saman...


Hér er allt tilbúið komið undir og búið að græja O2 sensor og stífu frá gírkassa eins og þetta er orginal.

Pústkerfið í heild sinni undir bílnum, kvarfakútur og læti
Má ekki menga mikið....


Heyrist lítið í bílnum sem er bara fint
Þetta ullast alveg vel áfram prófaði hann út götuna fram og til baka.
BARA sáttur með vinnsluna
