Pirrandi hljóð í 1 series bíl

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Pirrandi hljóð í 1 series bíl

Postby miura » Mon 29. Aug 2011 13:32

Sælir, langaði að vita hvort að einhver hér gæti aðstoðað mig aðeins.
Er með BMW 120, vandamálið er það að þegar að ég beygi þá kemur stundum leiðinda ýskur. Það heyrist aðalega þegar að beygt er til vinstri og heyrist það líka bara þegar að miðstöðin er í gangi. Ef að ég slekk a henni þá heyrist ekkert. Þetta er samt bara lágt hljóð sem heyrist varla ef að útvarpið er í gangi. Hljómar samt meira eins og að það komi að utan frá heldur en beint ú miðstöðinni.
miura
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 53
Joined: Fri 25. Apr 2008 18:47

Re: Pirrandi hljóð í 1 series bíl

Postby Zed III » Mon 29. Aug 2011 14:24

nær örugglega í miðstöðvarmótorinum.

er meira hljóð þegar það er kalt úti ?
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Pirrandi hljóð í 1 series bíl

Postby Hreiðar » Mon 29. Aug 2011 15:04

Örugglega miðstöðvarmótorinn. Lenti í þessu á e46. Var svo algjört pain þegar það var vetur. Ískraði vel í þessu.
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10

Re: Pirrandi hljóð í 1 series bíl

Postby miura » Thu 01. Sep 2011 08:40

Þakka svörin!

Minnir jú að það var einn kaldur morgunn í síðustu viku og þá var líka svona skemmtilega mikið ískur.

En læt tékka á þessu takk fyrir.
miura
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 53
Joined: Fri 25. Apr 2008 18:47


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 5 guests