Jæja, við bræðurnir fengum okkar fyrsta BMW á fimmtudaginn og svo í dag þá ákvað drifið að láta sig hverfa, ofboðslega gaman . Er einhver hérna sem að á svona drif eða getur sagt mér úr hvaða árgerðum það passar í 98 bílinn. Takk fyrir
Ég skal nú segja þér það hvernig við fórum að þessu. Ég var fyrir austan um helgina, kom svo í bæinn og fór upp í skipholt. Svo þegar var ég á leiðini þaðan þá kom bara smellur og voða gaman. Það hefur ekkert verið tekið á bílnum í okkar eigu, nema þá kannski bón og þriflega séð.
Bölvuð rusl þessi drif, ég braut tvö drif á gamla 740 bílnum mínum, 750 drif og 740 drif en þú getur bara notað 750 drif nema þú fáir öxla líka þá geturu notast við 740 drif. Ég tók ekkert á mínum bíl af viti nema bara beint áfram hann bara braut þetta sjálfur, eru líka mjög viðkvæm fyrir mismunandi dekkjamynstri og eh.
Ókei. Þetta er nátturlega bara ágiskun að drifið sé brotið, kemur hávaði þegar ég set í drive en ekkert skeður. Ég næ í bílinn á morgun og þá verður tékkað betur á þessu. En vita menn ekki um neitt drif sem að liggur á lausu ef að það er farið?