Enn fækkar hrísgrjónadollunum... Ég ók niður Laugarveginn núna í kvöld, föstudag og á undan mér var þessi ljómandi fallega Toyota Celica/Subra.. eða það var reyndar einn bíll á milli svo ég sá ekki alveg hvort það var.. en svo skutlaði ég félaga mínum heim.. þegar ég var að keyra til baka á Miklubrautinni yfir gatnamótin hjá Háaleitisbrautinni.. sá ég bíla negla niður og fólk stökkva út.. þá var þessi Toyota komin eitthvað lengst útaf inní runna og ofan á girðingu í spaði að mér sýndist... einhverjar leifar af bílnum hér og þar.. gat ekki séð almennilega hvað hafði gerst.. ljósastaurarnir í kring virtust vera heilir og ég sá hvergi annan skemmdan bíl.. svo fljótlega seinna komu einir 7-8 löggubílar á milljón, 2 sjúkrabílar og tækjabíll slökkviliðsins.. Ég er ekki nógu forvitinn því ég nennti ekki að fara og athuga hvur fjandinn hafði gerst.. veit einhver hér eitthvað meira um þetta?
adios
Valli Djöfull



