Ég fór í smá leiðangur í dag:
Fyrst fór ég uppí Sandafl í Hafnafirði (Skútuhrauni 4), þeir sögðust geta glerblásið felgurnar (16" X 4) fyrir 12.000 kr en glerblásum + sprautun = 20.000 kr.. Ég sá felgur hjá þeim sem voru ný sprautaðar og var ekki ánægður með litin á þeim. Voru einhvað skrýtnar.
Hringdi svo uppí HK sandblástur, þeir virðast vera með fast verð á felgu óháð stærð. En verðið var 1950 kr. alls 7.800. Verðið er með virðisaukaskatti. Þetta fer allt að verða betra
Svo spjallaði ég við enn hjálpsamari menn í Ofnasmiðjunni, sem er þarna rétt hjá. Þeir eru með svona "Powder Coating" í mörgum litum, samt ekki alveg svona titanium áferð eins og ég vill, heldur aðeins ljósari. Þeir sögðu að þeir taka u.þ.b. 12.000 kr fyrir að sprauta allar felgurnar.
Vona að þetta hjálpi einhverjum. Hvernig gengur annars hjá þér Babecar?