Olíuskiljueitthvað í e36

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Olíuskiljueitthvað í e36

Postby HaffiG » Sun 17. Jul 2011 21:24

Ég bara verð að deila þessu með ykkur áður en ég fer í að rífa þetta allt í sundur á morgun.

Þannig er mál með vexti að bíllinn minn alveg mökkreykir og brennir olíu, og þegar ég segi mökkreykir, þá meina ég MÖKKreykir!

Hann byrjaði allt í einu á þessu, fljótlega eftir að skipt var um heddpakkningu og í leiðinni var skipt um punginn sem fer inná heddið og tekur við olíu og skilar henni niður í pönnu. Pungurinn er svo tengdur við soggreinina og einhvern gæja sem líklega er hægagangskynjaraeitthvað. Mér hefur alltaf verið sagt að þetta væru ventlafóðringar, stimpilhringir eða bæði eða eitthvað allt annað. Ég neita að trúa að svona fóðringar gjörrifni svona allt í einu, þar sem bíllinn reykti ekkert áður.

Það er M50 manifold á bílnum sem einnig var sett á á sama tíma og mixið datt í sundur, semsagt það sem fer inná manifoldið að neðanverðu. Við það gekk bíllinn illa og byrjaði á þessum reykingum. Ég reif þetta svo allt af og hellti ca hálfum líter af olíu útúr manifoldinu, sem augljóslega er ekki eðlilegur staður fyrir olíu, og setti aftur á og bíllinn fór að ganga smooth. EN! áfram hélt kvikindið að reykja eins og enginn væri sunnudagurinn.

Ég er búinn að hugsa þetta í 2 mánuði, spyrja fólk spjörunum úr og alltaf fæ ég sömu svör. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að þessi fokking vacuumpungur/olíuskilja/yfirfall/whatever sem ég keypti hjá TB sé bara hand ónýtt drasl og sé annaðhvort að taka olíuna inná manifoldið frá heddinu eða hreinlega soga olíuna uppúr pönnunni.

Eru þetta rökréttar pælingar hjá mér eða er eitthvað sem mönnum dettur í hug að þetta gæti verið?
Allar ábendingar vel þegnar fyrir morgundaginn því þá ætla ég að ráðast á bílinn með afli.

Góðar stundir.
BMW e46 320d
Toyhatsu Rocky 38"
User avatar
HaffiG
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 468
Joined: Thu 26. Jun 2008 21:24
Location: Borg óttans

Re: Olíuskiljueitthvað í e36

Postby Zed III » Sun 17. Jul 2011 22:38

byrjaðu á að rífa olíuskiljarann úr og athuga hvort hann sé nokkuð stíflaður. Gerðu það sama fyrir allar slöngurnar sem tengjast honum.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Olíuskiljueitthvað í e36

Postby sosupabbi » Sun 17. Jul 2011 23:38

Er ekki bara öndunarventillinn fyrir mótorinn ónýtur, þessvegna frussast olía inní manifoldið, var þannig hjá mér amk, lýsir sér eins og þú lýsir þessu(olía í manifoldi og blár reykur)
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27

Re: Olíuskiljueitthvað í e36

Postby HaffiG » Sun 17. Jul 2011 23:44

sosupabbi wrote:Er ekki bara öndunarventillinn fyrir mótorinn ónýtur, þessvegna frussast olía inní manifoldið, var þannig hjá mér amk, lýsir sér eins og þú lýsir þessu(olía í manifoldi og blár reykur)

Góð smuga, hvar er þessi önundarventill?
BMW e46 320d
Toyhatsu Rocky 38"
User avatar
HaffiG
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 468
Joined: Thu 26. Jun 2008 21:24
Location: Borg óttans

Re: Olíuskiljueitthvað í e36

Postby sosupabbi » Mon 18. Jul 2011 13:48

HaffiG wrote:
sosupabbi wrote:Er ekki bara öndunarventillinn fyrir mótorinn ónýtur, þessvegna frussast olía inní manifoldið, var þannig hjá mér amk, lýsir sér eins og þú lýsir þessu(olía í manifoldi og blár reykur)

Góð smuga, hvar er þessi önundarventill?

Veit ekki hvernig þetta er á 6cyl en hjá mér var þetta ventill sem var tengdur 3 rörum, eitt úr ventlalokinu sem ventillinn skiptir svo í tvö minni rör, annað fer í inntakshosuna og hitt í inntaksmanifoldið, veit ekki nákvæmlega hvernig þetta er hjá þér en það sennilega eins ventill eða svipað kerfi bilað ss hleypir olíu upp með loftinu, ætti ekki að vera stórmál að finna þetta út með www.realoem.com
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27

Re: Olíuskiljueitthvað í e36

Postby Zed III » Mon 18. Jul 2011 14:52

ventillinn og skiljan eru sami hluturinn.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Olíuskiljueitthvað í e36

Postby HaffiG » Wed 20. Jul 2011 02:17

Ég skipti um öndunina og það lagaði málið. Skrítið þó að þetta var það sem mér datt í hug strax í upphafi, en ákveðnir aðilar fullyrtu að þessi öndun væri í lagi. En gott mál að geta loks lagað þetta fyrir lítinn sem engan pening eftir nokkra mánaða umhugsun og pælingar ;)
BMW e46 320d
Toyhatsu Rocky 38"
User avatar
HaffiG
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 468
Joined: Thu 26. Jun 2008 21:24
Location: Borg óttans


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 6 guests