Það er víst kominn tími á að bíll vinar mins fari í skoðun og hann kemst ekki með hann svo ég ætlað redda þessu fyrir hann en það er hængur á því.
Airbagljósið og örygisbeltaljósið loga bæði en ástæðan fyrir því að þau loga er að bíllinn er samansettur úr tveimur tjónuðum bílum, öðrum sem var með ónýtu body-i en rest í lagi og hinum með ónýtu rafkerfi og bilaðri vél en body í lagi. Svo spurningin er einfaldlega sú hvernig næ ég að láta ljósin fara?
Félagi minn sagði mér að ég þyrfti öruglega að láta lesa af honum. Ef svo er hvar get ég gert það og kostar það eh og þá hversu mikið? Þetta er BMW 735Li eða 745Li ef það skiptir eh máli.



