Var að þvo E39 M5 í gær og fer svo út í það að rífa diffuserinn undan. Þetta var smá bras, púststútarnir allt of stórir og því þurfti smá átak til þess að ná diffusernum af. Það tekst og ég fer að pússa stúta eins og enginn sé morgundagurinn.
Sest svo upp í bíl 2 tímum seinna og keyri burt, en tek eftir því að hraðamælirinn er úti, spólvörnin af, ABS og (!) ljós í gangi. Ásamt þessu öllu kemur villumelding á mælaborðið sem er óljós útaf pixel-vandamáli og ásamt því er hún á þýsku. Eftir því sem ég best veit er þessi melding "Rücklicht prüfen" og ætti því ekki að tengjast þessu. Samt eru öll afturljós virk og ég held að hann sé bara eitthvað að bulla í mér.
Er ekkert sérlega kátur með þetta, en ekki alveg viss hvað er að. Grunar að þetta sé annaðhvort skynjari eða ABS heili sem er farinn að fíflast í mér, þó get ég ekki fullyrt það. Þó er þetta vandamál sem auðvelt er að lifa við eins og staðan er núna. Svolítið tæpt að vita ekki hversu hratt maður ekur samt...
Öll ráð væru vel þegin!
Kv, Steini


