Kominn með skoðun á gripinn.
Þurfti reyndar að skipta um bremsuklossa og snúa bremsuslöngu (Einhver fyrri eigandi hefur náð að snúa henni í hring áður en hún var sett upp á).
Bremsuklossarnir voru greinilega eitthvað gallaðir því þegar ég tók þá úr þá datt bara púðinn sjálfur frá botnstykkinu á klossanum

.
En nýjir klossasr og skynjari komnir í
Einnig er búið að sprauta ofan í húddi þar sem viðgerðin var gerð og massa húddið. Það kom flott út.
Svo var ég búinn að laga flautu, hurðalamir, öll ljós (eitt plögg sem þurfti að skipta um), belti og eitthvað fleira.
Bíllinn er með parkljósin í stefnuljósunum. Finnst það voða töff
Næst er að gera eitthvað í innréttingunni og setja nýja lista í kring um afturgluggan og nýjar þéttingar í topplúgu.
Bíllinn er í mjög fínu standi virðist vera. Allar fóðringar og þess háttar mjög þéttar.
Vél gengur svolítið illa í hægagangi en ég á auka vél og allt sem því fylgir svo því verður reddað...