Ég var að setja LED perur í númeraljósin hjá mér á bmw 7, 95 árgerð og það kemur alltaf upp í mælaborðið "check numplate light". Það er væntanlega vegna þess að led perurnar taka svo lítinn straum að tölvan í bílnum skynjar ekki að það séu perur í.
Ég er búinn að tala við Bílaraf og Eðalbíla og niðurstaðan var sú að setja inn þráð hér á kraftinum og spurja hvort einhver hafi reynslu af þessu eða viti hvað gæti virkað ?
Semsagt tengt viðnám inná þetta eða álíka, og hversu sterkt viðnám þá.
Fyrirfram þakkir.

