bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 08. Jun 2025 12:35

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 27 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: BMW pæling!
PostPosted: Tue 20. Apr 2004 13:22 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Tue 20. Apr 2004 13:10
Posts: 3
Location: Don´t know
Ég er að hugsa mér að endurnýja bílinn minn og mér langar mest að fá mér BMW 8) ! En ég hef heyrt mjög skiptar skoðanir um þessi kvikindi og var að pæla hvernig hefur BMW reynst ykkur? Er einhver ákveðinn týpa og árgerð sem er alltaf að bila og kostar það alveg jafnt mikið og bílinn af fá varahluti?? :hmm:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Apr 2004 14:25 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Tue 25. Nov 2003 10:54
Posts: 178
Location: Vestmannaeyjar
Ég er búinn að eiga minn BMW E36 frá því í október (enginn reynslubolti kannski :wink: ) og ég er mjög ánægður með hann. Hef ekki lent í neinu, það er eins og draumur að keyra BMW :!:

_________________
BMW 320d 2004 módel (B GULL)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Apr 2004 15:56 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Posts: 598
Location: Reykjavík
Hehe, nú skal ég segja ykkur skemmtilega sögu. 1997 keypti ég mér 318 e36, 91 módel. Ég átti hann í 13 mánuði, keyrði hann yfir 30 þúsund og hann sló aldrei feilpúst.
Ég neyddist til að selja hann þegar ég fór í skóla og dauðsá alltaf eftir honum.

Í janúar í fyrra var ég búinn með námið og fór að svipast um eftir BMW og fann einn asskoti fínan sem ég fór að skoða. Þegar ég sá númerið á honum, sprakk ég úr hlátri, en þarna var gamli minn til sölu.

Þar sem ég vissi að þetta var gott eintak, keypti ég hann bara aftur! Á fínum prís meira að segja.

Það sem gerðist í millitíðinni var að, búið var að sprauta hann samlitan, setja hann á 17 tommu dekk, setja hvít stefniljós á hann og almennt hugsa vel um hann. Svo ég lít bara á sem svo að hann hafi verið í láni og það í góðum höndum.

Nú er þessi bíll keyrður tæp 230 þúsund og hefur bilað þrisvar eftir að ég keypti hann aftur.
Relay-ið fór fyrir rafmagnsrúðurnar og kostaði það 2300 krónur + 1000 kall fyrir ísetningu.
Kolin fóru í startaranum og kostaði það rúmar 10 þúsund í heildina.
Bensíndælan fór á föstudaginn og verið er að setja nýja í, er ekki búinn að fá reikninginn, en mér er sagt að dælan kosti um 15 þúsund. (ég bara kann ekkert að gera við, svo ég verð alltaf að borga viðgerðarkostnað)

Svo ég segi bara go for it. Fólk heldur enn að minn sé svona 5 - 6 ára, fyrir utan hvað er gott að keyra þessa bíla.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Apr 2004 16:01 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Posts: 598
Location: Reykjavík
Og við þetta má bæta að ég held að þú finnir ekki öflugra áhugamannafélag um neina aðra bíltegund hér á landi, þar sem menn eru boðnir og búnir að aðstoða ef maður lendir í veseni.

Það verður sko ekki metið til fjár..


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Apr 2004 16:12 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 03. May 2003 18:27
Posts: 834
Þó að þetta sé kannski ekki í samræmi við frásögn grettis vil ég samt benda þér á eitt atriði sem getur verið gott að hafa í huga varðandi BMW. Það eru minni líkur á að hitta á 5 línu bíl sem hefur verið snúið til helvítis og til baka aftur heldur en 3 línu bíl. Eins og flestir vita er mun meira um "villinga" á þristum heldur en fimmum.

Bara svo það sé alveg á hreinu ÉG ER EKKI AÐ BÖGGA þá sem eiga þrista, bara koma á framfæri ábendingu til væntanlegs kaupanda.

_________________
XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
B3 biturbo 2008 #101 (on it's way)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Apr 2004 16:12 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Posts: 2807
Location: Reykjavík
Bara samt vara þig við... þú getur lent á eintökum sem hafa fengið slæma meðferð. Það er samt viðhald á þessum bílum þótt að þeir séu góðir en maður fórnar smá viðhaldskostnaði fyrir ánægjuna af því að keyra þessa bíla. :wink:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Apr 2004 16:47 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
Er á þriðja bimmanum mínum. Samtals búinn að eiga BMW í 5 ár.

Fátt sem hefur í raun pirrað mig fyrir utan þetta venjulega viðhald,
þ.e. spindilkúlur, klossar/púðar. Varahlutirinir mættu þó vera ódýrari.

Mæli með þessum bílum....

_________________
Carrera4 964 '91


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Apr 2004 16:49 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Posts: 598
Location: Reykjavík
Það er nú þannig með flesta bíla sem eitthvað er varið í að keyra. Maður getur verið óheppinn. Þetta er bara spurning um að skoða vel gripinn áður en maður kaupir.

Ég er sammála þessu með þristana, enda eru þeir líka ódýrari og ég tala nú ekki um þá sem komnir eru á aldur. Þá er þetta á viðráðanlegu verði fyrir "villimenn" á hvaða aldri sem er, hehe.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Apr 2004 17:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Ef þú ert að leita að skotheldum BMW sem bilar sama og ekkert þá hefur mér sýnst að flestir mæli með e-34 (5 lína 1989-1996).

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Apr 2004 18:01 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Thu 18. Mar 2004 13:28
Posts: 107
Location: Hafnarfjörður
Svona fyrst við erum farnir að ræða um kaupa bmw.. þá langar mig að spyrja.

1. Hvernig er með 5 línuna og beinskiptingar... er eitthvað sem virkilega mælir á móti því að fá sér soleis og ef eitthvað hvað ætti maður að varst í sambandi við soleis ..

2. Er séns að bmw bílar séu "skrúaðir" niður ? og ef svo, er hægt að komast að því

3. Og svona í lokin er það rétt að þegar maður verslar bmw þá eigi maður að kaupa sér grænakortið til að komast upp í b og l til að versla varahluti og þess háttar. Segja að bmw bili meira ?

takk kærlega .. :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Apr 2004 18:16 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
spurning hvort þetta sé rétti staðurinn til að fá hlutlaust álit.

Kíktu á Live2Cruise.com og spurðu þá hvað þeim finnst um BMW :lol:

Nei nei.. ég er að fíflast.. ég er búinn að eiga 5 stykki BMW og eftir því sem reynsla mín verður meiri af þessum bílum verð ég stöðugt sannfærðari um að þetta sé sú bílategund sem mér finnst eftirsóknarverðast að eiga.

Eins og hefur verið bent á er auðvitað hægt að lenda á slæmum eintökum.

Þegar þessir bílar eru farnir að koma til ára sinna lenda þeir oft í höndunum á strákum sem spóla þessu af stað á öllum ljósum og djöflast og gera. Það hef ég ekki séð gert á Volvo og sjaldan á Benz þannig að það má kannski að hluta segja að sé skýringin á því af hverju einstaka BMW eldist illa og hefur farið að kvarta undan meðhöndlun með bileríi.

Ég hef einnig fundið fyrir gífurlegum fordómum gagnvart þessum bílum. Ég held að þar sé á ferðinni lögmálið með að ef stór hópur talar mikið um ágæti einhvers, t.d. bíómyndar, hljómsveitar, fótboltaliðs, trúarbragða, bíla, þá virðist alltaf þurfa að vera annar hópur til að hakka það niður líka.

Málið er bara það að það eru margir sem tala um hvað þeir séu ánægðir með BMW bílinn sinn og mín skoðun er sú að þetta eru sérstaklega skemmtilegir akstursbílar sem veita mikla ánægju í akstri. Ég þarf ekki að vera að fara neitt sérstakt þó ég fari stundum út og sest inní bíl. Mér finnst bara svo gaman að fara út að keyra þennan bíl.

Ég segi tvímælalaust GO FOR IT!!!!

..aðeins dýrari varahlutir en ég myndi segja að þeir bili ALLS EKKI meira en aðrir bílar ef við skoðum hvað það er hlutfallslega miklu fleiri hlutir sem geta bilað vegna þess hversu ríkulega þessir bílar eru oftast búnir af aukahlutum.

jæja.. ég ætla að hætta þessu væli..

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Apr 2004 18:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
5 línan er mjög skemmtileg beinskipt og þar græðir maður snerpu og eyðslu en aftur á móti er kaupandahópurinn einfaldlega ekki eins breiður svo endursala gengur hægar en ella a.m.k. á yngri bílum.

Já það er dálítið um það bimmar séu skrúfaðir niður og til að fá staðfesta tölu þarf að tala við B&L en þeir geta samt ekki alveg 100% fullyrt rétta tölu (menn eru mis bíræfnir við niðurskrúfunina)en komast nálægt því.

Ja bilar meira en venjulega, ég skal ekki segja. Ég kýs að segja að þeir gangi hraðar á slithluti en á öðrum bílum og bilanir eru oftast fólgnar í smáhlutum.

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Apr 2004 18:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Ég hafði enga trú á 5línu beinskiptum, en eftir að hafa verið á þannig bíl í 9mánuði, þá myndi ég eiginlega ekki vilja hafa hann annað en beinskiptan.

Þjónustubók er eiginlega það eina sem þú getur stuðs við varðandi akstur.. og mín reynsla af BMW er að þeir bila ekkert meira en annað, málið er hinsvegar það að fæstir okkar hafa efni á því að eignast nokkra ára gamlan Bimma fyrr en við verðum eld gamlir, og erum þess vegna oftast að kaupa eldri bimma vs yngri japanskan, og eftir því sem bílar verði eldri og sérstaklega eftir því sem þeir verða meira keyrðir, þeim mun meiri er bilanatíðnin.

Ég mæli hiklaust með BMW.

Image

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Apr 2004 20:29 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 03. May 2003 18:27
Posts: 834
Bjarkih wrote:
Ef þú ert að leita að skotheldum BMW sem bilar sama og ekkert þá hefur mér sýnst að flestir mæli með e-34 (5 lína 1989-1996).


Get allavega sagt að ég þekki einn svoleiðis sem hefur ekkert bilað í tæplega ár og þetta eru þræl skemmtilegir bílar + auðvitað hvað þetta er fallegt bodý

_________________
XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
B3 biturbo 2008 #101 (on it's way)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Apr 2004 20:38 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Smá info fyrir þá sem eru ,,HARD,, >>>>>> BMW--kaupendur

1991-1992: 728iA ---1982
1991-1992: 323i--- 1978 ((ALPINA look))
1991-1991: 316i Bavaria -- 1989
1993-1994: 320i Shadowline--- 1987
1994-1997: 520iA ---1988 ((breyttur í M20B25 m/turbo-intercooler))
1997-1998: 325i---1992
1998-1999: 523i---1996 ((Fyrsti E39 innfl. not. til Íslands bsk,,BV-820))
1999-2000: 523iA---1997 (( OH-880 Hrikalega vel búinn))
2000-2000: 525 ixAT---1992 (( átti bílinn stutt,var stolið og fannst aftur))
2000-2002: 733iA---1978 (( með leðri,,klima,,rafmagni ofl.))
2002-2003: 530iA V8---1994 ((frábær bíll <<Benzboy á bílinn núna>> ))
2003-????: 540iA---1997 (( Æðislegasti bíll sem ég hef átt,, Frábært ökutæki í alla staði og skilar sér ,,VEL,, áfram :D :D :D :D ))

Að lokum,,,,ok þetta er minn listi yfir þá BMW sem undirritaður hefur átt
og vil benda á það til þeirra sem eru að kaupa að :::::::: * Því betur sem bíllinn er úbúinn,, því betri kaup * Því öflugri sem bíllinn er því betri kaup
Allt sem upp er talið á LÍKA VIÐ UM ,,,NEIKVÆÐA HLIÐ,, eins og
Bilanir osfrv,,

Tökum td. E34 M5 >> Smekklegur og látlaus bíll,,frábært afl
mjög góðir hraðaksturs-aksturs eiginleikar en kostar ,,MIKIÐ ef þetta bilar,,

Alpina BI-TURBO >>> það sama,, en GRÍÐARLEGT AFL og kostar sjúklega mikið ef eitthvað fer úrskeðis

E30 325i >> Mesti ,,kultbíll,, EVER frá BMW kostar lítið flott afl,,en eyðir miklu ((að mínu mati)) og allt til í þetta af varahlutum. :wink: :wink:

Förum yfir í Mercedes og berum þetta aðeins saman,,
S-600 W140,,þungur ,yfirleitt mjög vel búinn,, EKKI ódýr,, GRÍÐARLEG orka,, ((sérstaklega í millihröðun og + 120 )) ath,, E39 M5 og ALPINA
BI-TURBO eru á sama ,,,,,scala..... mjög gott verð á varahlutum og bilar lítið

E-420.. W124 fín kaup en er ekkert á við 540 í afli ,,Mjög smooth motor,, bilar lítið og er klassabíll í alla staði

E-500 W124 GEGGJAÐUR bíll ekki ódýr.. en vel búinn en er ekki eins skemmtilegur akstursbíll að mínu mati og E34 og E39 en Gríðarleg orka
og er ekta AUTOBAHN.......cruiser

Allir bílarnir sem upp eru taldir eru + 1000.000 ÍSL.KR

NEMA..........E30 325 sem hægt er að flytja inn á 400.000- 500.000
fyrir góð eintök,,
Ég vil benda á það að margir E30 eigendir sem eru hér á spjallinu
og eru ,,, oskard--arnib--stefán325--gstuning--uri--Rútur325
eru búnir að eyða ,,,,,,,,,að mínu mati SKUGGALEGUM $$ í bílana sína


það skiptir ekki máli.. GST og STEBBI eru búnir að ganga í gegnum mikinn óheppnis-ferill og þekki ég þetta vel ,,SJÁLFUR,,
þar sem ég er einn ,,ELSTI,, ((Der alte)) reynsluboltinn og búinn að sukka ..vangefnum peningum ..í þennan sjúkdóm sem heitir

BMW.......illnenss

Hér eru ekki taldir upp 4CYL vélar þar sem undirritaður gefur ,,frekar ,, lítið fyrir ´þær vélar ,nema um TURBO sé að ræða..

Sá sem hefur áhuga á þessum bílum verður að sætta sig við kosti og galla þessara bíla.....

ATH..... Í nýlegri könnun Auto Motor und Sport ((Sænska útgáfan))
kom fram hverjir væru minnstu bilana tíkurnar.. 0-100

1) Toyota Yaris
2) Toyota RAV4
3) BMW E39.................................yes yes yes yes,,,,,

100) Renault Laguna 97% :x :x :x :x :x :x :x :x

Vonandi að þetta komi einhverjum að gagni

Sv.H


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 27 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 16 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group