Hersla á ró fyrir "Top Mount" á coilover kerfi

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Hersla á ró fyrir "Top Mount" á coilover kerfi

Postby JOGA » Thu 16. Jun 2011 11:31

Sælir,

Er að setja í kerfið hjá mér.
Getur einhver sagt mér hver er góð leið til að herða þessa ró án þess að skemma neitt.

Náði að herða svona þéttingsfast með höndunum en nælon þráðurinn á rónni er samt ekki kominn alveg upp á gengjurnar. Ekkert slag samt í leguhúsinu svona.

Prófaði að ýta gorminum niður efst og halda í efsta hlutann á pípunni með Kraft töng sem ég teipaði til að rispa ekki. (Þetta er ekki hluti af demparápípunni sjálfri heldur fyrir ofan hana.) Gat ekki hert neitt mikið meira þannig).

Er þetta í lagi svona? Ég setti þetta í og sé ekkert athugavert við þetta. Vildi bara ganga úr skugga um þetta og heyra hvort það væri einhver betri leið möguleg.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Re: Hersla á ró fyrir "Top Mount" á coilover kerfi

Postby gstuning » Thu 16. Jun 2011 11:34

Þetta þarf ekki að vera neitt brjálæðislega hert.

Enn á meðan dempara stöngin hreyfist ekki og þú getur ekki hert meira þá er þetta orðið gott :)
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Re: Hersla á ró fyrir "Top Mount" á coilover kerfi

Postby JOGA » Thu 16. Jun 2011 11:42

gstuning wrote:Þetta þarf ekki að vera neitt brjálæðislega hert.

Enn á meðan dempara stöngin hreyfist ekki og þú getur ekki hert meira þá er þetta orðið gott :)


Hún fór að hreyfast aðeins með kraft tönginni. Vildi ekki herða hana of mikið á stöngina.
Var samt nokkur tregða og hægt að taka ágætlega á rónni.

Fannst bara óþægilegt að nælon þræðirnir kæmust ekki alveg upp á stöngina.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests