N42B20 bölvað drasl?

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

N42B20 bölvað drasl?

Postby ömmudriver » Sat 28. May 2011 11:57

Sælir piltar,

bróðir minn á eitt stykki gullfallegan E46 318iA 2003 módelið sem væri ekki frásögu færandi nema það að hann er búinn að láta skipta um vél einu sinni og stendur nú frammi fyrir major aðgerð við að laga seinni vélina.

Þetta lýsti sér þannig að þegar hann kaupir bílinn fyrir fjórum árum amaði ekkert að bílnum eða svo hélt hann þangað til hann settist uppí bíl með samskonar mótor/skiptingu sem var töluvert sprækari en bíllinn hans. Hann fer í málið og sendir hann inní TB sem lesa af honum og segja honum að nokkur háspennukefli séu ónýt ásamt eitthverjum skynjara á vél(sem ég man ekki hver var), hann kaupir þetta nýtt og skiptir um en ekkert lagast bíllinn. Ég sagði honum þá að ræða við strákana inní Eðalbílum sem og hann gerir og kíkir Bjarki á bílinn og kemst að því að ventlastýringararmur í Valvetronic dótinu sé kapút. Varahlutirnir sem til þurfti í verkið ásamt áætlaðri vinnu voru þónokkrir hundrað þúsund kallar þannig að Bjarki og ég mældum með að hann leitaði að notaðri vél og fann hann eina sem kom úr silfurgráa AC Schnitzer breytta E46 318 bílnum sem tjónaðist uppá heiði. Skipt var um vél og viti menn, bíllinn þrælvirkaði loksins og bróðir minn hæstánægður þrátt fyrir allt þetta helv. vesen.

Nú eru komin um tvö-þrjú ár síðan "nýja" vélin fór ofan í og byrjar bíllinn á því núna í mánuðinum að láta öllu illu með rauðum ljósum í mælaborði og tilheyrandi! Bróðir minn drap á honum og lagði útí kant þar sem að hann núllaði tölvuna og setti í gang og bíllinn gekk eins og ekkert hafði í skorist en fór beint með hann ínní TB og lét lesa af honum. Ekkert fundu þeir en töldu að sveifarás- og knastáskynjararnir væru líklegir til þess að vera að valda þessu. Vikuna eftir þetta fór hann með bílinn til hans Kidda(K.Kristinnsson) sem kíkti betur á þetta og fann að tímakeðjan var sultuslök og taldi hann líklegt að hann hafði hoppað yfir á tíma. Kiddi þekkir þessar vélar ágætlega og veit að tímakeðjustrekkjarinn í þessum vélum fyllist af sóti með tímanum sem veldur því að hann strekkir ekki eins mikið á keðjunni og honum ber að gera sem jú veldur því að keðjan verður slök og getur hoppað yfir á tíma. Hann pantar því nýjan betrumbættan strekkjara úr umboði sem hann setur í bílinn og keðjan verður strekkt eins og hún á að vera og gengur bíllinn eðlilega. Daginn eftir er bíllinn kominn aftur uppá verkstæði hjá Kidda BILAÐUR og þarf nú að lyfta heddinu af mótornum og eitthvað meira vesen :thdown:




Er einhver hér sem hefur lent í veseni með þessa mótora??
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Re: N42B20 bölvað drasl?

Postby HAMAR » Sat 28. May 2011 15:11

Ég átti minn 318i '03 í 3 mánuði og hann klikkaði aldrei á þeim tíma :lol:
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(
User avatar
HAMAR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2232
Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Location: ókunnug.

Re: N42B20 bölvað drasl?

Postby gunnar » Sat 28. May 2011 21:37

HAMAR wrote:Ég átti minn 318i '03 í 3 mánuði og hann klikkaði aldrei á þeim tíma :lol:


Það HLÝTUR að þýða að þetta séu skotheldur mótorar :lol: :thup:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: N42B20 bölvað drasl?

Postby SteiniDJ » Sat 28. May 2011 22:42

Well, ég var með M43B19 í 2000 E46 318iA í ár+ og bilaði mótorinn ALDREI. Svo kom N42 sem replacement fyrir M43, en N42 voru framleiddir í samstarfi við MG Rover ... þannig að ... :lol:
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: N42B20 bölvað drasl?

Postby ömmudriver » Sun 29. May 2011 01:07

SteiniDJ wrote:Well, ég var með M43B19 í 2000 E46 318iA í ár+ og bilaði mótorinn ALDREI. Svo kom N42 sem replacement fyrir M43, en N42 voru framleiddir í samstarfi við MG Rover ... þannig að ... :lol:


M43 er mikið betri mótor því að það er ekkert Valvetronic drasl í honum :thup:
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Re: N42B20 bölvað drasl?

Postby slapi » Sun 29. May 2011 09:55

Afhverju þarf að lyfta heddinu af mótornum?
Er hann ekki bara farinn yfir á tíma eins og allir þessir mótorar munu gera einn daginn?
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Re: N42B20 bölvað drasl?

Postby Alpina » Sun 29. May 2011 11:07

HVAÐ ER AÐ GERAST , eiginlega

er allt þetta nýja sem framleiðendur eru að búa til .. lélegt upp til hópa

KIA og Hyundai virðast vera fremstir nú á tíðum ,, Amerískt er einnig að koma sterkt inn
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: N42B20 bölvað drasl?

Postby BMW_Owner » Sun 29. May 2011 12:56

Alpina wrote:HVAÐ ER AÐ GERAST , eiginlega

er allt þetta nýja sem framleiðendur eru að búa til .. lélegt upp til hópa

KIA og Hyundai virðast vera fremstir nú á tíðum ,, Amerískt er einnig að koma sterkt inn



hlutir í dag eru svo sannarlega ekki byggðir til að endast. í gamla daga var allt einfalt en þá hentu menn bílunum útaf því að þeir riðguðu svo mikið en í dag riðga bílar lítið sem ekkert en í staðinn þá hrynja vélarnar eins og andskotinn. (Vélar=skynjarar,kassi,drif)
BMW 528Ia
User avatar
BMW_Owner
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1965
Joined: Sun 29. Jun 2003 16:58

Re: N42B20 bölvað drasl?

Postby Andri Fannar » Mon 30. May 2011 09:51

Mín hafði ekki verið með neitt vesen í rúm tvö ár fyrr en núna í vor.

Fyrir tveimur árum var skipt um allt tengt tímakeðjunni, strekkjara og svoleiðis.

Núna fór hann að hegða sér undarlega og fullt af villum komu, Davíð kannast við þetta, endaði á að taka allt í sundur og stilla tímann á keðjunni upp á nýtt og þá varð hann aftur góður :thup:
Image

>> BMW e46 318(2L) '02 - Í notkun <<
User avatar
Andri Fannar
Kassabílstjóri
 
Posts: 192
Joined: Thu 29. Jan 2009 14:31

Re: N42B20 bölvað drasl?

Postby -Hjalti- » Mon 30. May 2011 12:10

BMW_Owner wrote:
Alpina wrote:HVAÐ ER AÐ GERAST , eiginlega

er allt þetta nýja sem framleiðendur eru að búa til .. lélegt upp til hópa

KIA og Hyundai virðast vera fremstir nú á tíðum ,, Amerískt er einnig að koma sterkt inn



hlutir í dag eru svo sannarlega ekki byggðir til að endast. í gamla daga var allt einfalt en þá hentu menn bílunum útaf því að þeir riðguðu svo mikið en í dag riðga bílar lítið sem ekkert en í staðinn þá hrynja vélarnar eins og andskotinn. (Vélar=skynjarar,kassi,drif)


í gamla daga voru menn að taka 160hö útúr 5.7 lítra vélum.. :lol:
og meðal fjölskildutíkur voru ekki mikið meira en 50-60hö.
Það er ekki skrítið að þetta endist þegar ekkert er verið að taka útúr þessu
00' E38 750i
-Hjalti-
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1332
Joined: Wed 09. May 2007 20:41

Re: N42B20 bölvað drasl?

Postby SteiniDJ » Mon 30. May 2011 13:08

Alpina wrote:HVAÐ ER AÐ GERAST , eiginlega

er allt þetta nýja sem framleiðendur eru að búa til .. lélegt upp til hópa

KIA og Hyundai virðast vera fremstir nú á tíðum ,, Amerískt er einnig að koma sterkt inn


2001 - 2003, ekki beint það nýjasta!
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: N42B20 bölvað drasl?

Postby maxel » Wed 01. Jun 2011 01:36

SteiniDJ wrote:
Alpina wrote:HVAÐ ER AÐ GERAST , eiginlega

er allt þetta nýja sem framleiðendur eru að búa til .. lélegt upp til hópa

KIA og Hyundai virðast vera fremstir nú á tíðum ,, Amerískt er einnig að koma sterkt inn


2001 - 2003, ekki beint það nýjasta!

Maðurinn er fæddur 1904, þetta er nýtt fyrir honum
maxel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5844
Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45

Re: N42B20 bölvað drasl?

Postby Alpina » Wed 01. Jun 2011 07:24

Þetta er liðónýtt..

Nýju V8 vélarnar hjá MB BMW PORSCHE VW ,, er meira og minna í lúkunum á mechanics,,, virkilega illa ígrundaðar sparnaðir sem menn hafa notað einnig eru 4 cyl bensín hjá BMW og MB sérlega bilanagjarnar

Viðskiptafræðingar///Hagfræðingar hafa fengið að fara offari með excel-skjölin sín en ,, gæðin og áræðanleikinn þurft að láta í minni pokann ..
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: N42B20 bölvað drasl?

Postby Lindemann » Wed 01. Jun 2011 23:11

Alpina wrote:Þetta er liðónýtt..

Nýju V8 vélarnar hjá MB BMW PORSCHE VW ,, er meira og minna í lúkunum á mechanics,,, virkilega illa ígrundaðar sparnaðir sem menn hafa notað einnig eru 4 cyl bensín hjá BMW og MB sérlega bilanagjarnar

Viðskiptafræðingar///Hagfræðingar hafa fengið að fara offari með excel-skjölin sín en ,, gæðin og áræðanleikinn þurft að láta í minni pokann ..


HALLÓ!

fullt af fólki verður atvinnulaust ef þetta dót bilar ekki helling..... Mér finnst þetta góð þróun! :alien:
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 11 guests