Gott kvöld, það hefur komið fyrir mig núna í tvígang eftir að bíllinn hefur látið standa í um 2 daga óhreyfður (veit ekki hvort það skipti máli)
að það komi vond lykt útúr miðstöðinni þegar ég kveiki á honum en hverfur eftir 5 mínútur eða svo. Fyrst fanst mér þetta vera svona
hestalykt eða svona eins og er inní fjárhúsum eða e-h en þetta er virkilega slæm lykt og kalla þetta bara ýldulykt
Ég er búinn að tjékka í öllum bílnum og það er ekki vatnsleki eða neitt inní bílnum sem ætti að lykta enda kemur hún um leið og ég
kveiki á honum þá gýs þetta útum miðstöðina en ekki alltaf bara í þessi 2 skipti. Fyrst fyrir kanski mánuði síðan og síðan núna áðan.
Hvað gæti þetta verið? Ég er enginn sérfræðingur en gæti þetta ekki verið bara e-h gömul drulla í einhverjum miðstöðvarsíum eins
og frjókornasíunni eða eithvað ? veit samt ekkert hvort eithvað komist þangað sem gæti farið að slá í.. hehe
en hefur einhver annar lent í þessu og leyst vandann?
Takk kærlega
