645csi

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

Re: 645csi

Postby saemi » Wed 23. Jun 2010 01:00

Er ekki rétt að endurvekja þennan þráð!

:P

VEMS komið í

Jæja, bíllinn gengur með aðstoð VEMS frá og með deginum í dag!

Þetta gekk nokkuð vel, en mæ god hvað það eru margir lausir endar sem þarf að hnýta fyrir svona dæmi. Það þurfti að skrúfa og gera og græja hitt og þetta, en dagurinn í dag var vitað sem deadline og því varð bíllinn vað vera klár seinnipartinn í dag, Gunni fer út á morgun. Það tókst að mestu leyti að gera allt klárt, en að sjálfsögðu var ýmislegt sem gekk ekki alveg eins og það átti að gera.

Fyrst þá startaði bíllinn ekki. Það var búin að vera smá reikistefna með tengingarnar á milli alternators og startara, nýja loomið er allt öðruvísi hvað það varðar en hið gamla. Að lokum fannst út úr því og bíllin startaði. Þá var megn eldsneytislykt sem reyndist vera spíss sem lak með fuel-railinu. Þannig að það þurfti að kippa því af og setja nýjan 0-hring. Aftur saman og þá hrökk hann í gang, mér til mikillar furðu. Greinilegt að Gunni greyið veit sitt hvað þegar hann er að grúfa sig ofan í lappann sinn á milli þess að víra hægri og vinstri.

Eftir að bíllinn fór í gang þá kom í ljós að núna vildi hann ekki kúpla! Við vorum alveg innrammaðir með tíma þannig að það var ekki annað í boði en að fara út að keyra, starta í öðrum og stoppa ekki á ljósum nema drepa á bílnum, starta honum í gang með hökti og slúðra mega á kúplingunni :| skipta svo í þriðja með að rev-matcha og bursta tennurnar. En þetta gekk, fórum rönn upp nesjavallaveginn. Þar kom "púff" og ein slanga fyrir icv sprakk opin. Keyrðum svo til baka, en ég var ekki sáttur við ganginn í bílnum frá því við fórum að heiman. Fannst hann ganga svo grófur. Við vorum að endingu sammála um að bíllinn væri sennilega bara að leika AUDI, gengi bara á 5cyl. Þegar heim var komið þá kom í ljós að það var rétt, hann hafði ekki gengið á fremsta cyl.

Allavega, ég fór undir að blæða kúplinguna og gunni að redda cyl númer eitt ásamt hosunni. Allt tókst það nema hvað kúplingin var alveg jafn slæm og áður!!!! En enn minni tími nú en fyrr svo aftur var startað af stað og þrumað upp í Bláfjöll á boost-i.

Sú ferð gekk ágætlega. Fengum smá súra gúrku efst upp við skíðaskálana þegar reyk tók að leggja upp úr húddinu er við vorum að snúa við. Kom í ljós að lofttæmingarnippillinn á vatnsláshúsinu hafði ekki verið hertur (ég skipti um kælivatn og olíu á bílnum við þetta tækifæri) nægilega svo það pissaði allt út um allt. Vorum svo í því á heimleiðinni að reyna að blæða loft af kerfinu og bæta vatni á bílinn, þegar við neyddumst til að fara krókaleiðir til að sleppa við rauð ljós. Ekki hægt að stoppa á bíl sem er með bilaða kúplingu.

Bíllinn er keyrsluhæfur en það á eftir að fíntjúna þetta verulega. Startaði honum aftur núna áðan köldum og hann er flöktandi upp og niður í hægaganginum. Það kom líka í ljós að við botngjöf, eftir c.a. 2-3 sek. þá minnkar boost-ið hægt og rólega niður í 0.3 bör! Mig grunar sterklega blow-by ventilinn, að hann sé að hleypa framhjá sér. Þarf að athuga það mál og púsla restinni af innréttingunni saman, ásamt fullt af smáatriðum. En fyrst kúplingin og framstuðaran á :)

Takk Gunni.... og ég :)
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: 645csi

Postby Stefan325i » Wed 23. Jun 2010 01:14

Flott hjá þér Sæmi, ekki slæmt þegar 6an fer að verða ökuhæf enn á ný, við kanski rúllum saman á gömlu bílunum okkar á næsta ári þegar minn verður vonandi til.
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning
User avatar
Stefan325i
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2596
Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Location: Milemarker 85.

Re: 645csi

Postby Einarsss » Wed 23. Jun 2010 08:32

Altaf eitthvað :x

Lætur mig bara vita ef þú vilt að ég kíki með þér að taka log :) Svo verður bara tekið fjartjún á þetta að hætti gstuning hehe
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: 645csi

Postby Einarsss » Thu 24. Feb 2011 13:23

Jæja, er ekki kominn tími á updeit? búinn að redda kúplingunni og keyra eitthvað? :D
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: 645csi

Postby saemi » Thu 24. Feb 2011 15:51

Einarsss wrote:Jæja, er ekki kominn tími á updeit? búinn að redda kúplingunni og keyra eitthvað? :D


Kúplingin er komin, var að bíða eftir að það væri smíðað fyrir mig bracket svo ég gæti sett Alpina dogleg kassann í. Það var að detta í hús, svo kassinn fer í á næstu dögum. Annars vildi bíllinn ekki í gang, tók ekki við sér þegar ég reyndi að starta honum um daginn. VEMS eitthvað að stríða mér.... Þarf að tengja og sjá hvað er að. Verst að ég kann ekkert á það :lol:
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: 645csi

Postby Einarsss » Thu 24. Feb 2011 16:13

saemi wrote:
Einarsss wrote:Jæja, er ekki kominn tími á updeit? búinn að redda kúplingunni og keyra eitthvað? :D


Kúplingin er komin, var að bíða eftir að það væri smíðað fyrir mig bracket svo ég gæti sett Alpina dogleg kassann í. Það var að detta í hús, svo kassinn fer í á næstu dögum. Annars vildi bíllinn ekki í gang, tók ekki við sér þegar ég reyndi að starta honum um daginn. VEMS eitthvað að stríða mér.... Þarf að tengja og sjá hvað er að. Verst að ég kann ekkert á það :lol:



Ég ætti að geta kíkt á þig og gáð hvort ég geti eitthvað hjálpað. Ekki vissi ég af því að það væri að fara dogleg kassi í :shock: 8)

Annars er gunni búinn að setja mjög gott info á vems.is ;)
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: 645csi

Postby saemi » Thu 26. May 2011 00:14

Búið að lífga þennan við fyrir sumarið.

Fór með hjartastuðtæki á hann um daginn eftir alltof langann tíma í bílskúrum og of langa útiveru í vetur. Fór í skoðun í dag eftir laaangt stopp. Eina sem var fundið að var að engin viðvörunarþríhyrningur var um borð 8)

Image
Image
Image

Það hafði farið kúplingin í honum á einhvern óskiljanlegan hátt. Gormarnir í diskinum höfðu yfirgefið hann og sest að hér og þar innan í pressunni. Þetta orsakaði það að ekki var hægt að kúpla frá. Þetta gerðist við að færa bílinn inn og út úr skúr, þannig að ekki er hægt að segja að þetta hafi gerst við mikil átök, þ.e. þegar allt varð stopp. Gormarnir hljóta þó að hafa losnað fyrr. Diskurninn var nýr, (kannski ekið 2000 km á þessu) ásamt pressu og svinghjólilnu. En, aftur fór nýr SPEC diskur í svo nú er allt komið í lag á ný.

Ég notaði tækifærið og setti í bílinn dogleg kassa sem ég átti og stóð alltaf til að færi í bílinn. Úr fór M5 kassinn sem kom úr E28. Það þurfti að föndra aðeins til að fá skiptiarminn til að passa, en mig langaði ekki að setja gamla dótið í, líkt og fór í hjá Skúla (srr). Ég fékk því smá hjálp við suðu og rennivinnu til að föndra nýja dótið við gömlu festingarnar á kassanum.

Jæja, skrifa meira seinna, læt myndirnar tala sínu máli.


Image
Image
Image
Image
Image
Image

Ein mynd af duglegu vinstri hendinni minni í dag :P

Image

Nú er bara að halda áfram að púsla og pússa. Verður vonandi orðinn mun betri í sumar.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: 645csi

Postby SteiniDJ » Thu 26. May 2011 00:18

Jæja Sæmi, nú verður pabbi glaður! Er ekki kominn tími á photoshoot hjá ykkur? Einu sexurnar hér heima sem sést hafa á götunni í nokkur ár núna! :mrgreen:
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: 645csi

Postby F2 » Thu 26. May 2011 00:18

Sæmi,, er þetta 65 prófíll á afturdekkjum :lol:
Volvos always get bitches... its just fact... they cant resist the safety and the idea of not having to buy a different car when they have kids... bitches love that
User avatar
F2
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1697
Joined: Thu 22. Jul 2004 14:27
Location: over there

Re: 645csi

Postby Axel Jóhann » Thu 26. May 2011 00:21

Úúú verður nice að berja þennan augum á ferðinni, ég held ég hafi bara séð hann einu sinni eða tvisvar og þá var hann í pörtum inní skúr! 8) 8) 8)
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: 645csi

Postby kalli* » Thu 26. May 2011 00:28

Bartek með bjór í hendi við stýrið, nice.
Image
'01 e46 320Ci
Seldir - '96 e39 540i | e36 M50B25 Compact | 99' BMW 316i Compact | '91 e34 520i
User avatar
kalli*
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2687
Joined: Sun 29. Mar 2009 14:06

Re: 645csi

Postby saemi » Thu 26. May 2011 00:31

kalli* wrote:Bartek með bjór í hendi við stýrið, nice.


Jáááhhh og meira að segja í innkeyrslunni hjá mér nýbúinn að ryksuga bíllinn, þetta er glæpsamlegt :lol:

Image
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: 645csi

Postby saemi » Thu 26. May 2011 00:34

F2 wrote:Sæmi,, er þetta 65 prófíll á afturdekkjum :lol:


Reyndar er þetta 50 prófíll :P

16" er ekki með mesta úrval af dekkjum í heimi. Þú verður bara að þola þetta aðeins lengur :P
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: 645csi

Postby F2 » Thu 26. May 2011 00:36

saemi wrote:
F2 wrote:Sæmi,, er þetta 65 prófíll á afturdekkjum :lol:


Reyndar er þetta 50 prófíll :P

16" er ekki með mesta úrval af dekkjum í heimi. Þú verður bara að þola þetta aðeins lengur :P


Hvað er þetta breið dekk vs felgur?
Volvos always get bitches... its just fact... they cant resist the safety and the idea of not having to buy a different car when they have kids... bitches love that
User avatar
F2
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1697
Joined: Thu 22. Jul 2004 14:27
Location: over there

Re: 645csi

Postby saemi » Thu 26. May 2011 00:41

F2 wrote:
saemi wrote:
F2 wrote:Sæmi,, er þetta 65 prófíll á afturdekkjum :lol:


Reyndar er þetta 50 prófíll :P

16" er ekki með mesta úrval af dekkjum í heimi. Þú verður bara að þola þetta aðeins lengur :P


Hvað er þetta breið dekk vs felgur?


255/50 á 10" breiðu
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

PreviousNext

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 30 guests