Helgzman wrote:
FIlmur á fimmtudag - Er að pæla í 15% afturí og 35% frammí?
e-h betri hugmyndir?
Persónulega finnst mér 35% allan hringinn fallegast - en ég guggnaði á því og fékk mér bara 50% til að forðast óþarfa bögg. Fer annað slagið út á land í heimsókn til þeirra gömlu og löggan þar er alveg ofvirk í að pirra sig á filmum og ég nenni ómögulega að fá boðun í skoðun út á þetta.
Setti upphaflega 20% aftur í en lét rífa það úr þar sem mér fannst það koma illa út og downgrade'a heildarlúkkið á bílnum og setti því 50% þar líka - kom miklu betur út að hafa allar rúður smókaðar frekar en augljóslega dekkri rúður aftur í. Það halda reyndar allir að það sé 35% í bílnum, kannski af því að afturrúðurnar eru litlar og innréttingin dökk. Heildarniðurstaðan er alveg stórsmekkleg þó svo að ég segi sjálfur frá.
Þannig já, ef þú ert til í að taka "slaginn" við lögguna þá 35% alla leið!
Hérna er líka stórgóður þráður um þetta, mundu bara að flestar þessar myndir eru teknar í sólskini sem við upplifum sjaldan hérlendis og að við þurfum minna að pæla í að bíllinn hitni:
http://www.e90post.com/forums/showthread.php?t=3093