Sælir
Það var skipt um heddpakkningu hjá mér fyrir skemmstu og í leiðinni sett M50 manifold á mótorinn. (M52B25 motor)
Fyrst eftir að ég keyrði hann var allt í gúddí (fyrstu 100km eða svo), svo fóru að koma gangtruflanir í hann sem versnuðu og versnuðu. Loks fann ég eitt atriði sem var líklega skýring, stútur á manifoldinu sem fór inná bremsuboosterinn var að taka falskt loft. Ég snittaði nýjan stút á og límdi vel, það er allt solid núna en áfram gengur bíllinn ekki lausagang og gjörsamlega skilur eftir sig blátt ský úr pústinu og hrikalega lykt.
Mér datt helst í hug einhver vacuum leki þar sem það þurfti að mixa slöngur fyrir manifoldið, en getur það orsakað svona miklar gangtruflanir í hægagangi og svona mikinn bláan reyk?
