sosupabbi wrote:
Hjalti_gto wrote:
kom þessi vél ekki úr 750 sem er núna komin með 350 Chevy V8?? það voru allavega gangtruflanir í þessari vél þá.
Tasken wrote:
Þá var brunað til Einars (Bmw owner) og náð í mótor

BMW_Owner wrote:
já,það var eilíft vesen á v12 vélinni hún gekk alltaf á helmingnum og svo var olían á skiptingunni kolsvört og brunalykt,þegar maður er kominn í það að vera endalaust að reyna laga meir og meir og meir þá gefst maður upp og þannig var það nú ég var búinn að gera allan andsk. við bílinn þegar ég nennti þessu ekki lengur þannig að 350 var bara "eina lausnin"
Hefuru athugað hvort sjálf vélin sé yfirleitt í lagi?
Væri sniðugt að þjöppumæla hana til að byrja með.
Sem betur fer er ég ekki með þessa skiptingu sem hann talar um en mér hefur alveg dottið í hug að ég þurfi að þjöppumæla en ég er bara svo hræddur við útkomuna, btw ekkert sem bendir til að headpakkning sé farin eða þessháttar, svo ef þjappan er ekki nógu góð eru þá ekki ventlasæti eða stimpilhringir ónýtir ? langar allavega ekki að fara í svoleiðis viðgerðir.
sælir félagar, já ég finn til með þér í þessu endalausa veseni þínu en þetta eins og ég sagði gekk aldrei hálfan gang en samt var ekkert sem benti til þess hjá mér að neitt væri að vélinni mekanísklega séð og ég stórefast um það líka, vélin er/var ekin 189993km og hvorki var vatn í olíu né olía í vatni á vélinni og alltaf flotthljóð í henni. Það sem var að hrjá þessa vél hjá mér var það að hún gekk bara á helmingnum og það sem ég komst meðal annars að var að önnur bensíndælan var ónýt ég lagaði það, síðan neistaði ekkert þeim meginn sem vélin gekk ekki, þá skipti ég um sveifarásskynjara og yfirfór allan andskotann, víxlaði tölvunum og ég veit það ekki allt sem ég datt í hug bara. en nei aldrei kveikti hún á þessum helming en ég verð afarhissa ef vélin er farin á heddpakkningu eða ventlaþéttingar þreyttar.
bílinn var influttur 2007 þannig öll keyrslan á að vera highway drive eina ástæðan fyrir svörtu olíunni á skiptingunni var að pólverjinn sem átti bílinn á undan mér hefur eitthvað verið að reyna burnout-a á bílnum og þá því miður gerist þetta (hjólaskálarnar hjá mér voru með soldið af gúmmíi)

en skiptingin virkaði samt fínt.
ég get fullvissað þig á því að þegar þú sigrast á þessum gangtruflunum þá ertu kominn með toppmótor í hendurnar.
heyrðu. eitt sem mér datt í hug! þegar ég sprautaði sogreinarnar og ventlalokin þá þurfti ég auðvitað að taka sogreinarnar af og það er hræðilegt að komast að öllum skrúfunum þannig
ég setti ekki allar aftur í :/ en þétti samt allt með kítti og þetta lak ekkert en það var áður en ég tók vélina úr bílnum og auðvitað áður en hún var sett í þinn bíl, (örugglega hreyfst eitthvað) tjékkaðu hvort hann sé ekki bara að draga falsloft meðfram þessu og já setti alla boltana aftur í, ef þetta virkar ekki.. þá veit ég ekkert hvað er að þessu, ekkert frekar en þegar ég átti þetta
kv. þú sendir mér bara ep ef þér vantar að vita einhvað meira um þetta. Annars bara gangi þér vel með þetta-þetta eru æðislegar vélar þegar þetta er í lagi
