Ég er mikið að gæla við það að fara í M50 manifold swap og er búinn að vera að skoða allskonar erlendar síður tengdar svona swappi.
Einhversstaðar las ég að togið í bílnum gæti minnkað við þetta. Er það eitthvað sem er raunin eða? Ég skil þetta swap þannig að bíllinn eigi einmitt að toga meira.
Ég var líka að pæla hvort einhver hér hefur farið í svona swap? Einhverjar ráðleggingar varðandi þetta? Eitthvað sem þarf að hafa í huga þegar þetta er gert og hvað þarf að gera annað en að breyta vacuum slöngum?
Rakst á þessa mynd:






