Sælir piltar,
Vatnsláshúsið er aðeins farið að leka í M52 í E30. Mér var bent á að fá mér álhús sem mér fannst nú bara sniðug hugmynd.
Ég hringdi í TB og þeir sögðust aldrei hafa átt svona og væru á móti þessum húsum. Sögðu að þetta væri veiki hluti vatnskerfisins af ástæðu, ss að þetta ætti að springa ef kerfið hegðaði sér ekki rétt. Frekar en heddpakkning eða vatnskassi etc.
Er eitthvað til í þessu að því leiti. Er plastið alveg nógu sterkt, auðvitað slitnar það með árunum, mitt er að byrja að springa eftir 10+ ár.
Segið ykkar skoðun.


