Sælir,
Við félagarnir erum að fara skipta um mótor í sjöunni minni, sem er oem 730i með M30B30.
Við erum að fara setja ofan í M30B35 sem ég hef átt út í skúr í nokkur ár.
Sá mótor er búinn að vera olíulaus allan tímann.
Ég hef heyrt að maður þurfi að græja eitt og annað áður en sett er í gang mótor sem hefur staðið svona lengi olíulaus.
Það sem mig langaði að heyra frá ykkur,,,,er hvað er það sem þarf að huga að áður en mótor er gangsettur, til að skemma ekki legur o.s.frv. út af þurrki ?



