Sæl öllsömul
Fyrir nokkru varð ég í fyrsta sinn á ævinni BMW eigandi, það var eitthvað sem ég ætlaði aldrei að gera því ég hélt að þetta væru bara bilana skrjóðir. Annað er nú á teningnum því þetta er bara hin besta sjálfrennireið og ég er bara ánægður með þetta allt.
Ryð: Fyrri eigandi var ekki flinkur í höndunum og gat ekki með góðu móti stoppað ryðið í frambrettunum, þau eru ónýt og hann benti mér á gaur (partasölu/verkstæði) í Hafnarfyrði sem væri lang ótýrastur með varahluti í BMW. Að sjálfsögðu týndi ég þessum upplýsingum frá honum og fynn engar vísbendingar með einfaldri leit á vefnum...
Er einhver hér sem hefur hugmynd um hvaða verskstæði/partasala/verslun whatever þetta getur verið...?
Bestu þakkir og gleðilega hátíð - Hansuman



