Núna er vesenið byrjað aftur á blæjubílnum. Þetta gerðist fyrst þegar ég þreif hann þá drap bíllinn á sér á leiðinni heim og fór svo ekki aftur í gang. Svo gerðist þetta nokkrum sinnum aftur seinna þegar mjöög mikil rigning var eða ný búinn að þrífa bílinn. Þegar þetta gerist drepur bílinn á sér enn það er hægt að starta nema það að bíllinn fer alls ekki í gang ,,, kemur ekki bensín að mótor
Ég hélt að þetta væri komið í lag þegar ég þétti alt í kringum bensíndæluna og tengin þar og bíllinn hafði ekki verið með neitt svona vesen í tvo mánuði þrátt fyrir að vera keyrður daglega í öllu veðri en núna var þetta að gerast aftur.
Hvað / hvar getur þetta verið?

