McLaren finnur blóraböggul - mbl.is

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

McLaren finnur blóraböggul - mbl.is

Postby bebecar » Tue 13. Apr 2004 11:37

McLarenliðið hefur gert Hans-Ulrich Maik, framkvæmdastjóra mótorsmiðju liðsins, að blóraböggli vegna verstu byrjunar liðsins á keppnistíð í Formúlu-1 í yfir 20 ár. Hefur Maik verið gert að taka poka sinn.
Frá þessu segir í breska blaðinu The Observer en þar segir jafnframt að Mercedes, sem á mótorsmiðjunar Ilmor sem sér McLaren fyrir keppnismótorum, muni jafnframt hefja endurskoðun á þátttöku sinni í Formúlu-1.

Í júlí mun Jurgen Hubbert láta af starfi íþróttastjóra Mercedes. Við af honum tekur maður að nafni Wolfgang Bernhard sem ekki er sagður jafn áhugasamur um að bílsmiðjan haldi í 40% hlut sinn í McLaren og Hubbert.


Það lítur út fyrir að Benz sé bara á útleið úr formúlunni - ég vona bara að Lamborghini komi í staðinn :shock:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Svezel » Tue 13. Apr 2004 11:45

Ekki gáfulegt ástand á McLaren þessa daganna....

Það er gott að geta kennt einum manni um þetta :roll:
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby bebecar » Tue 13. Apr 2004 11:48

Svezel wrote:Ekki gáfulegt ástand á McLaren þessa daganna....

Það er gott að geta kennt einum manni um þetta :roll:


Nákvæmlega... aumingja maðurinn!

Ég held bara að þetta endurspegli stöðuna hjá fólksbíladeild Benz í dag. Þeir eru ekki að standa sig nógu vel og hafa tapað markaðshlutdeild.

BMW hefur svo náð að vinna á. Sést kannski líka hve skynsamir BMW menn eru sinni framleiðslu, engin SLR á þeim bænum (því miður eiginlega)....
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby GudmundurGeir » Tue 13. Apr 2004 12:22

Það er samt leiðinlegt ef benz ætla að hætta í formúlunni... :shock:
User avatar
GudmundurGeir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 514
Joined: Wed 31. Mar 2004 13:58
Location: Reykjavík / Sjórinn


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 14 guests