Ég var að skipta um felgur á bílnum hjá mér, úr því að vera á 15" vetrarfelgum yfir á 17" style 67 replicur.
Þegar ég byrja að keyra virðist allt vera í himna lagi, en svo finnst mér eins og bíllinn fari að rása svolítið í aðra áttina, ekki alltaf þá sömu. Stuttu seinna heyri ég eitthvað fremur óþæginlegt hljóð meðan ég er á hringtorgi. Ég giska á að þetta hafi verið dekk að rekast utan í bílinn hægra megin að aftan, þar sem ég komst að því að það er minna bil milli dekks og bíls hægra megin en vinstra megin að aftan.
Svona er þetta vinstra megin:

og svona hægra megin:


Ég var að hugsa hvort það sé ekki eitthver hér sem veit hvað gæt verið að valda þessu? Var að spá í að fara með hann upp í Eðalbíla, en ákvað að spyrja hér fyrst, svona upp úr því að ég kemst ekki með hann þangað strax.
Edit: Kannski vert að taka fram að þetta er 1996 árgerðin af E36 318i Cabrio.
Takk Takk
Gunnar Atli


