Bjarkih wrote:
Hvar hefur þú séð já-menn halda því fram að þetta hverfi?? Ef allt fer á besta veg duga eignir Landsbankans fyrir þessu og þá er þetta ekkert mál sbr
http://www.facebook.com/photo.php?fbid=207895499240379&set=a.204600012903261.56881.203062023057060&theater en þó þetta fari eitthvað verr erum við betur stödd með samningin en án hans vegna þess að lánakjör verða betri.
Það er enginn með neitt 100% í þessu máli eins og þú ættir vel að vita, en ef atvinnulífið kemst ekki í gang segir það sig sjálft að það verður dýrara að lifa hérna á Íslandi.
"Afhverju eru Já menn smeykir við dómststóla leiðina?"
Þetta snýst ekki um það, þetta snýst um að kunna að meta hvor leiðin er skynsamlegri og hvort það sé áhættunar virði að fara í löng málaferli fyrir ekki stærri upphæð.
Svo er það grundvallarspurningin: Er í lagi siðferðislega að mismuna mönnum eftir ríkisfangi?
http://visir.is/ja-er-svarid-i-icesave/ ... 1110409274"Þar með vona ég að þetta mál sé úr sögunni"
Aftur , hvernig veistu að lánakjör verða betri? Eru erlendir bankar búnir að gefa út yfirlýsingar þess efnis?
Hverjir akkúrat hafa sagt þetta?
Það er heldur ekkert bókað að atvinnulífið fari á fullt ef þetta er samþykkt. Enn eitt vafamálið sem hvor hlið getur staðfest.
Hvar stendur það svart á hvítu í hvaða magni atvinnulífið fer á fullt?
Fyrir ekki hærri upphæð? Maður tekir ekki á sig skuldir sem manni ber ekki að borga, ekki er einn einasti útrásavíkingur að fara
bjóðast til að setja pening í íslenska baukinn .. Af því bara útaf þrýsting, þeir eins og allir á eðlilegum grundvelli fara með mál fyrir dómstóla eða láta taka sig til dómsstóla. Afhverju ætti Íslenska ríkið að vera öðruvísi?
Ég get skilið að menn eru orðnir smeykir við að halda áfram að segja Nei enda verður þetta síðasta skiptið sem einhverjir milliríkja samningar verða reyndir held ég.
Mér finnst eins og "Já" hópurinn sjái fyrir sér þefinn af 2007 þegar er búið að segja Já. Þá fari bara allt á fulla ferð,
fjárfestum rignir inní landið á heiðarlegum forsendum, og erlendir bankar vilji ekkert gera nema henda til okkar peninga
til að starta lífinu í atvinnumálum hérna. Þetta auðvitað er ósennilegt í besta lagi.
Það á lítið sem ekkert eftir að breytast eftir Já tel ég nema það að núna situr yfir landinu reikningur sem er ekki vitað hvað á eftir að kosta.
Á hvorn veginn sem fer þá eru hellingur af öðrum skuldum landins sem þarf að afgreiða.
_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
