Verð eiginlega að vera sammála því, þetta er ekki að gera sig á myndum. Felgurnar eru líka mjög ljósar sem kannski ýkir stærð þeirra miðað við stærð bílsins. Ég væri alveg til í að sjá þetta í dekkri lit undir bílnum, þá mætti hugsanlega lækka aðeins meira að framan ef það er möguleiki. En þetta eru samt sem áður fallegar felgur
