Þessi fékk smá klapp frá Axel master-mechanic í dag.
- Skiptum um vatnsdælu, henda þessu plastdóti úr áður en mótorinn fer að bryðja á bitunum af henni.
- Nýr vatnslás, sá gamli opnaði alltof snemma sem olli því að bíllinn hitaði sig aldrei upp að miðju. Virkar fínt núna
- Skiptum einnig um aftari pústgrein sem hafði komið sprunga í og pústaði með fram.
- Svo var einnig DEPO projector ljósin sett í ásamt gulum filmum á kastarana - Þetta kemur alveg vel út

Er reyndar svolítið fúll með stærðina á filmunum frá lamin-x - Finnst þær ekki ná nógu langt upp á endana á ljósunum,
verður bara að koma í ljós hvað þetta tollir lengi.
Þarf að taka myndir af bílnum núna með ljósin í gangi, þetta er alveg bara töff í myrkri.
Næst á dagskrá er að lita leðrið aftur, orðið aðeins snjáð. Skipta um abs skynjara, festa afturstuðara almennilega, finna nýjar pumpur í afturhlera og stoppa upp í nokkrar ryðbólur sem hafa myndast hér og þar.
Þá fer þessi nú að verða boðlegur. Verst að það fer að líða að því stigi á bílaeign minni sem ég sel bílinn, þ.e.a.s þegar hann er kominn í gott stand og ég ætti að fara að njóta hans..

Reyni að sleppa því í þetta skiptið.