Jæja, þá er Intravee II komið í!

Hér sjást öll ósköpin. Alpine KCA-420i þarna lengst t.h. Þetta er tækið sem Intravee talar við og túlkar svo yfir í BMW mál.

Rifum aðeins frá og festum KCA-420i við þessar skrúfur þarna. Smellpassaði alveg, en þurftum að róta aðeins! (Svo fann ég 2x geisladiska þarna

, ótrúlegt hvað leynist falið í þessum bíl).

Hérna er búið að ganga frá öllu og þarf bara að loka.

Svona er þetta semsagt. Þarna situr ipoddinn velkróaður við bílinn, í hleðslu þegar bíllinn er í gangi.

Þetta fæ ég á skjáinn hjá mér. Intravee er svolítið rough-around-the-edges, en þetta virkar skrambi vel og er ótrúlega skemmtileg lausn! Mæli með þessu fyrir þá sem eru með navi en nota þetta nánast ekki neitt!