Ég ætla að byrja að segja að þetta er ekki BMW bill og þetta er ekki heldur að fara undir BMW bill. Ég einfaldlega vildi deila þessari uppgerð með ykkur sem mundu virða hana hvað mest.
Sagan á bak við felgunar.
Ég er með MK2 Golf sem ég er að gera upp HÆGT og rólega og auðvitað þurfti ég einhverjar flottar felgur til að fara undir bilinn og ég fékk mér BBS RS felgur sem ég áhvað siðar meir að selja vegna peninga leysis og ég sá fram á að þurfa að borga meira í varahluti fyrir RS felgunar en nyjar aðrar felgur.
Ég áhvað að finna mér 15" bmw basketweave felgur og gera þær flottar.
Eftir smá leit hafði Dr. Stock hér á spjallinu samband við mig og seldi mér umgang á djók verði, reindar voru þær allar einhvad aðeins skakar ekkert til að kvarta yfir, ein var reindar í frekar ömurlegu ástandi. Siðan fékk ég tvær aðrar felgur hjá Sigga Lancer á L2C spjallinu.
Það sem er búið að gera:Láta rétta allar 6 felgunar (Áliðjan eru snillingar í þessu fagi)
Púsa allar miðjunar (tilbúnar undir grunn)
Pólera 2 kanta (er að taka AÐEINS of langan tima)
Kaupa BBS miðju set #1, vitlausar (fékk siðan hjálp hjá Alpinu til að finna réttu miðjunar, gæti ekki verið þakklátari fyrir hjálpina)
Kaupa BBS miðju set #2, eiga að vera á leiðini (en búið að vera endalaust bras á gaurnum sem var með þetta uppboð á ebay)
Kaupa BBS crome hex nut fyrir miðjunar, komið i hús (BBS # 09.23.114)
Kaupa BBS 3D Silver logo (rétt stærð í þvermál en ekki rétt bakhlið, en vel nothæfar) (BBS # 09.23.392)
Kaupa BBS loft ventla (BBS # 09.15.004)
Kaupa BBS Hex Nut tool (BBS # ?)
Það á eftir að vinna þetta svoldið en þetta kemur hægt og rólega.
Hér koma nokkrar myndir af ferlinu.

Í þvi að þrífa þær og gera þær svoldið sætar

Siðan var keyft LOW profill dekk 195/45R15

búinn með 400 grit


hér er 1200 grit búið, ég gerði ekkert meira þvi ég fann ekki 1500 grit pappirinn og vildi ekki hopa beint i 2000 grit.

ég held að þetta offsett á eftir að vera killer flott á bilnum, ég er jafn vel að hugsa um að setja 5-10mm spacera lika og þá held ég að þetta verði nokkuð töff.

og þetta eru miðjunar sem ég vann á ebay

Miðju Logoin

Crome Hex Rærnar

Núna væri rosalega gaman að heira frá ykkur hvada lit ég ætti að nota á miðjuna á felgonum, ég ætla að sprauta bilinn í ljós brúnum lit ef það hjálpar við valið á lit í miðjuni.
Með fyrir fram þökk og bið allt skit kast velkomið!