Need Bmw M5

Hér skal spjalla um BMW.

Re: Need Bmw M5

Postby emmari » Tue 29. Mar 2011 19:45

snilld
emmari
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 23
Joined: Tue 24. Feb 2009 20:36

Re: Need Bmw M5

Postby saemi » Wed 30. Mar 2011 00:13

Ég þekki ágætlega þá sem um ræðir í þessarri sögu. Tel þá til vina minna, frekar en kunningja.

Mér finnst leiðinlegt ef þetta verður til leiðinda á milli góðra einstaklinga, bara vegna mismunandi skoðanna á þessu málefni. Samt gæti ég nú trúað að þetta muni draga dágóðan dilk á eftir sér. Það eru ekki allir sem fyrirgefa jafn glatt og ég.....

Það má vel vera að ég sé ekki nógu harður gaur. Sé ekki tilbúinn til að borga í gegnum nefið, taka skotið í brjóstið, stökkva upp og ausa úr skálum reiði minnar er mér mislíkar eitthvað med det samme.

Sá sem harðast deildi hér fór að mínu mati langt yfir strikið. Það má segja ýmislegt í öruggu umhverfi, þegar aðstæður eru réttar í góðu tómi. Ég þekki kauða mjög vel og kann að deila með 10 þegar hann er kominn í gírinn, en það er ómögulegt fyrir ókunnuga að sjá það. Þetta verður flókið þegar svona mál hafa farið útfyrir öruggt umhverfi og ratað fyrir augu allra.

En ég sé bara ekki af hverju það þarf að vera svona mikill æsingur í kringum þetta mál. Það er ekki eins og viðkomandi hafi stofnað hér þráð, betlandi pening af Pétri og Páli. Eins og ég skildi þetta, þá var verið að tala um að notfæra sér "publicity-ið" við það að fara með málið "out in the open". Fá aðila til að sponsora og koma hlut sem VAR BÚIÐ AÐ BORGA Í TOPP í upprunalegt ástand. Það er ekki verið að grátbiðja meðlimi hér um að kasta pening í púkkið, það er ekki búið að biðja þá um krónu!

Ég skil fullvel sjónarhorn eigandans, hann var búinn að koma sér upp skotheldri græju, ekki af ódýrustu sort (að því að hann hélt allavega, hljómaði þannig líka, þó að turbo geti seint talist skothelt :? ) sem var síðan tekin upp á eistunum og kreist úr henni líftóran, honum alls fjarri og í trássi við fyrirmæli hans.

Ég ætla ekki að kasta rýrð á þann sem hélt um eistun, ég hef hingað til ekki dæmt menn nema af eigin raun. Það hefur virkað ágætlega hingað til, þó svo að maður verði að taka mörgu(m) í þessum heimi með vara, ef maður vill ganga sáttur frá borði. Menn verða líka að teljast saklausir unns sekt er sönnuð.

Ég skil málið þannig að það sé verið að reyna að bjarga því sem hægt verður, með því að fá hjálp utanaðkomandi aðila. Síðan hvenær hefur fólk verið að hæðast að SÁÁ fyrir að selja einhvern Álf á fáránlega yfirsprengdu verði? Eða Kvennaathvarfið fyrir að selja ömurlega hallærislegan geisladisk með lögum frá Geirmundi, Geira Ólafs og Helgu Möller á 3000 krónur! Er rétt að drulla yfir Gylfa Ægisson þegar hann hringdi í mig um daginn og bauð mér að kaupa disk af sér? Ég sleppti því að hella mér yfir hann fyrir ósvífnina, ég bara sagði nei takk. Hann nefnilega var að bjóða /biðja mig, ekki að krefjast neins. Hann var meira að segja kurteis og vingjarnlegur líka!

Ég veit vel að það eru til göfugri málefni (kannski ekki Gylfi Ægisson), en bottom line að mínu mati er: Það var ekki verið að biðja einn né neinn um að borga krónu, einungis að viðra þá hugmynd að koma söfnun af stað ef fólk vildi hjálpa til af fúsum og frjálsum vilja! Það var enginn að tala um Bmwkraft, ég skildi þetta allavega alþjóðlega í tengslum við umfjöllun á heimsvísu.

Jæja, þetta er orðinn miklu lengri póstur en ég ætlaði. Þetta er bara búið að blunda aðeins í mér, mér hefur fundist umræðan svolítið ósanngjörn. Eins og ég sagði, þá þekki ég alla hlutaðeigandi aðila ágætlega, þeir hafa auðgað flóru BMW áhugamanna safnaðarinns og það væri synd að missa þá úr þessarri hringiðu. Það er kannski borin von, en ég vona að sem flestir af þessum einstaklingum geti talað saman í góðu í framtíðinni, þeim sjálfum og okkur hinum til ánægju og fróðleiks.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Need Bmw M5

Postby gunnar » Wed 30. Mar 2011 00:41

Góður póstur sem á vel við.

Mér hefur fundist umræðan um þetta mál á ansi lágu plani hér á Kraftinum.

Og þessi póstur hjá Tombob er hálf barnalegur og eingöngu settur inn til að starta veseni.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: Need Bmw M5

Postby íbbi_ » Wed 30. Mar 2011 01:03

ég áhvað að tjá mig sem minnst um þetta mál, og held að það séu þessu máli ekki til framdráttar að það sé skeggrætt hérna. og skildi í raunini aldrei almennilega af hevrju málið var látið fara jafn mikið í gegnum spjallborðið og raun bar vitni,
en það er nú ekkert skrítið að þetta sé mjög umdeilt.. og vekji jafnvel hörð viðbrögð.
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Need Bmw M5

Postby Alpina » Wed 30. Mar 2011 23:43

Sæmi.................. ertu meðvirkur ??

Án nokkurs persónulegs kala ??
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Need Bmw M5

Postby tinni77 » Thu 31. Mar 2011 01:06

Alpina wrote:Sæmi.................. ertu meðvirkur ??

Án nokkurs persónulegs kala ??



Bíddu.......er bara einhver Ríkis-skoðun hjá Team BE ??


:lol:

Image
BMW E30 325i Coupe
Image
User avatar
tinni77
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2822
Joined: Fri 23. Jan 2009 23:46
Location: 112 RVK, E30 city

Re: Need Bmw M5

Postby ///MR HUNG » Thu 31. Mar 2011 10:04

Það er alveg verið að sjá til þess að maður nenni ekki lengur að skoða eins spjallið sem vit var í út af svona fáránlegu bulli og stælum eins hefur verið í gangi hér undanfarið!
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image
User avatar
///MR HUNG
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6493
Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Location: Hrafnista

Re: Need Bmw M5

Postby saemi » Fri 01. Apr 2011 00:45

Alpina wrote:Sæmi.................. ertu meðvirkur ??

Án nokkurs persónulegs kala ??


Eins og svo oft áður, þá þarf ég nánari útskýringu á meiningu þinni kæri Sveinbjörn :o

Ég er ekki að fara að tjá mig um viðkvæmt málefni án betri tilvísunar í meiningu þína.

Ég hef aldrei fundið annað en hlýju frá þér þannig að ég átti ekki von á neinum kala. Við getum samt alveg haft mismunandi skoðanir og rifist jafnvel í góðu er það ekki :lol:
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 23 guests