Eins og titillinn segir þá er ég að grennslast fyrir hvort bimminn geti fengið skoðun með airbags ljós logandi í mælaborði.
Ef ég man rétt þá má bíll fara í gegnum skoðun með eina athugasemd ef sú athugasemd tengist ekki hjólabúnaði og bremsubúnaði? held ég...
það er nokkurnveginn búið að komast að hvað er að og afhverju ljósið logar. fór með hann í tölvu hér á Akureyri og þar stóð að þetta væri hægra framsætið. Svo upphófst smá bras og komst þá að fyrri eigandi hafði sullað einhverjum drykk í sætið og það hafði svo sigið í mottuna sem gerði það að verkum að hún er bókstaflega ónýt.
Einhver sem gæti sagt mér hvort hann geti farið í skoðun með þetta ljós?
kv Hallgrímur
