bíllinn rafmagnslaus á keyrslu.

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

bíllinn rafmagnslaus á keyrslu.

Postby auðun » Sun 20. Mar 2011 22:44

jæja strákar nú er ég lost. ég var að keyra heim á e34 525 sem er ekki frásögufærandi nema hvað að abs ljósið kviknar altíeinu í mælaborðinu, það hefur bara einusinni gerst áður en hvarf þá strax aftur og það var fyrir 2 vikum. jæja ég hélt áfram heim og altíeinu eftir 2 mín kemur bremsuljósið líka og þá loga þessi 2 ljós og ég fer að hugsa hvort það sé of lágt á forðabúrinu(bremsuklossarnir eru búnir að framan en það tengist þessu ekkert).. þegar ég á 400 metra eftir heim tek ég eftir því að mælaborðið er rosalega dauft og bíllinn byrjar að koka og missa afl og ég sé að hann er að verða rafmagnslaus.. :aww: Aldrei kom hleðsluljós, hann var rafmagnslaus 200 metrum áður en ég komst heim og var allveg dauður en ég tek eftir því að ef ég býð í smá tíma jókst alltaf ljósið í mælaborðinu eins og geymirinn jafni sig aðeins..
ég stekk heim að sækja vin minn og ætla að láta hann koma og ýta og eftir 10 mín stökkvum við í bílinn og ég ætla nú að prófa og viti menn bíllinn rýkur í gang án þess að hiksta og ég keyri hann bara heim og hef hann í gangi á planinu og eftir 5 mín byrjar hann að koka í lausaganginum og ljósin koma og hann deyr..

mynduð þið halda að altanetorinn væri ónýtur því reimin er enn að snúa honum þó hún sé morkin og ljót. á aðra og á bara eftir að henda henni í en þessi snýr honum allveg.

einhverjar ágiskanir?
E30 340i
E46 320
E46 330 imola A ELV
auðun
Getawaybílstjóri
 
Posts: 574
Joined: Thu 10. Jul 2008 23:27

Re: bíllinn rafmagnslaus á keyrslu.

Postby JonHrafn » Sun 20. Mar 2011 22:53

Líklega alternatorinn, gæti verið rafgeymirinn en það er aðeins langsóttara, bara spennumæla bílinn ef þú færð hann í gang aftur.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Re: bíllinn rafmagnslaus á keyrslu.

Postby auðun » Sun 20. Mar 2011 22:58

spennumæla þá bara alternatorinn ? það er varla nóg að athuga bara spennuna á geyminum en á alternatorinn ekki að gefa út um 14 volt og geymirinn að vera sirka 12,7 volt. ég þarf auðvitað álagsmæli ef ég ætla að tékka ástand á geyminum er það ekki
E30 340i
E46 320
E46 330 imola A ELV
auðun
Getawaybílstjóri
 
Posts: 574
Joined: Thu 10. Jul 2008 23:27

Re: bíllinn rafmagnslaus á keyrslu.

Postby Lindemann » Sun 20. Mar 2011 23:10

byrjaðu bara að spennumæla rafgeyminn bæði með dautt á bílnum og í gangi.
spennan á að fara í ca. 13,8-14.2 þegar hann er í gangi.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Re: bíllinn rafmagnslaus á keyrslu.

Postby GunniT » Sun 20. Mar 2011 23:51

Skoðaðu jarðtengingar...
Gunni 8663170

BMW M5 Anthrazit Metallic
User avatar
GunniT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2074
Joined: Thu 11. Mar 2004 18:20
Location: Keflavík

Re: bíllinn rafmagnslaus á keyrslu.

Postby Einsii » Sun 20. Mar 2011 23:52

Pott þétt alternator, lýsir sér alveg eins og þegar hann fór í 535 hjá mér.
Ég reif hann úr og fór með hann á Ásco sem er bílarafmagnsverkstæði hér á Ak og þeir redduðu honum fyrir mig.
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Re: bíllinn rafmagnslaus á keyrslu.

Postby Axel Jóhann » Mon 21. Mar 2011 01:21

Þetta er alternatorinn, það gæti líka verið laus stóri vírinn sem kemur á hann, skoðaðu það.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: bíllinn rafmagnslaus á keyrslu.

Postby auðun » Mon 21. Mar 2011 01:54

ég mældi hann og hann gaf bara 11,7 volt sem er alltof lágt og svo þegar hann var í gangi þá mældi ég rafgeyminn og hann lækkaði bara niður þangað til að hann dó. svo ég reif altenatorinn úr og þvílík þrengsli. ég reif hann í sundur og kolin eru greinilega allveg á síðasta snúning. ég kaupi þau á morgun. fást´þau ekki í búð uppá höfða við hliðina á stylnum sem heitir ljósboginn eða eitthvað.
furðulegast við þetta allt fannst mer samt að ég fletti upp´altenatornum í realoem og hann gaf upp 80A og 140 A altenatora í þessa bíla en þessi sem er í bílnum er 90 A. en takk fyrir upplýsingarnar frá ykkur. :D
E30 340i
E46 320
E46 330 imola A ELV
auðun
Getawaybílstjóri
 
Posts: 574
Joined: Thu 10. Jul 2008 23:27

Re: bíllinn rafmagnslaus á keyrslu.

Postby Svessi » Sun 27. Mar 2011 22:24

Ég veit svosem ekkert um hvar þú færð varahluti en alltaf þegar ég er í veseni með alternator þá fer ég alltaf niður í Rafstillingu í Dugguvogi 23.
Þeir mæla líka rafalinn fyrir þig, held ég frítt, eru enga stund að því ef þeir hafa tíma.
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 18 guests