Daginn.
Nú hef ég ekki átt bíl með M30 mótor áður en ég tel að mótorinn sé að ganga heldur gróft í hægagangi og alveg þokkaleg bensínlykt í gangi.
Er þetta kannski bara eðlilegt fyrir M30 keyrðan 270 Þús?
Ætla nú að taka eftir mánaðarmót og skipta um kerti og smyrja en er eitthvað annað sem að kraftsmeðlimum dettur í hug.
Veit reyndar að það á eftir að skipta um vatnslás og ætla ég að plata meistara Axel Jóhann í það eftir mánaðarmótin.
Og svo eitt, það er alveg í góðu að keyra mótorinn á bara venjulegri 95 oktan? Þarf að kaupa eitthver bætiefni?
Með fyrirfram þökk, Atli Þór

