Sælir
Það er komið eitthvað bank í bílinn hjá mér í akstri. Bankið tengist ekki gangi vélarinnar þannig að þetta hlítur að vera eitthvað tengt drifinu. Bankið eykst þegar hraði eykst, og breytist ekkert þó ég kúpli eða taki úr gír. Svo heyrist það mis hátt, stundum ekki neitt og stundum alveg til að gera mann brjálaðann.
Vitiði hvað þetta gæti verið?


