Nú er því miður komið að því, eftir næstum 10 ára sögu Bmwkrafts, að stjórn hans hefur tekið þá ákvörðun að ekki dugi annað en að grípa til þess ráðs að banna einstaklinga sem örþrifaráð þegar um ítrekuð brot er að ræða.
Þetta er gert sem síðasta úrræði, þegar viðkomandi einstaklingar hafa hunsað tilmæli um að bæta hegðun sína, þrátt fyrir ítrekuð tilmæli. Spjallsíða þessi hefur verið með meiri slaka en margar aðrar, en því miður er það svo að til að halda spjallinu í því formi sem við viljum sjá það, þá dugir ekki annað en aðgerðir þessar. Reglur kraftsins eru ekki flóknar, í grunninn má segja að þær séu eins og venjulegt heiðarlegt og gott fólk hagar sér.
Það sem þessir einstaklingar hafa gert af sér vita flestir, en fyrir þá sem ekki þekkja til, þá er verið að banna nú í fyrsta sinn vegna:
Hótana um líkamsmeiðingar
Ítrekuð leiðindi og óeðlilega notkun á spjallinu (magn ofl.).
Óheilindi í viðskiptum (ítrekuð og mörg)
Bann kraftsins er á þennan hátt:
Fyrsta brot, mánaðarbann.
Ítrekað, þrír mánuðir.
Stærri brot, ár.
Fyrir hönd stjórnarinnar,





