Þá er maður kominn á alvöru fjölskylduvagn. Það mátti svo sem alveg við því líka þar sem það fjölgaði í familíunni í desember þannig mig langaði orðið mikið í góðan bíl með stóru skotti.
Ég keypti þennan bíl af honum JOGA á spjallinu. Ég hafði reynt að eignast þennan bíl nokkrum sinnum áður í gegnum árin en aldrei tekist.
En þetta er sem sagt E36 328i Touring árgerð 1995. Bíllinn er sjálfskiptur og með ljósa leðurinnréttingu.
Fæ að stela aukahlutalistanum úr þræðinum hjá honum JOGA
Quote:
0037 - Finn ekkert um þetta. Líklegast leðurinnréttingin í bílnum (ljós)
0209 - 25% Limited Slip Differential
0302 - Theft Alarm with Remote Control
0320 - Script Name Plate
0411 - Electric Window Regulator Front/Rear
0423 - Velour Floor Mats
0428 - Warning Triangle/First Aid Kit
0438 - Precious (real) Wood Equipment
0441 - Smoker's Package
0498 - Mechanical Rear Headrest
0534 - Automatic Air Conditioning
0651 - Radio, BMW Reverse RDS
Bíllinn er sem sagt ágætlega búinn. Mesti kostur hans er þó án efa læsta drifið sem kemur sér afar vel í snjónum. Búinn að keyra bílinn í færðinni núna grimmt og þetta er alveg að virka sem skyldi
Bíllinn er þó ekki laus við nokkra vel valda galla og hef ég verið að vinna í þeim undanfarna daga.
Helsta vandamálið var tengt tjóni sem bíllinn lenti í fyrir átta árum síðan. Bíllinn lenti þá í árekstri á bílstjórahliðinni á fremri enda bílsins. Það var skipt um bitann að framan og allt gert mjög vel og engin ummerki um tjón á bílnum.
Nema vandamálið er að það var notaður biti úr 1992 árgerð af bíl og er bitinn greinilega örlítið öðruvísi að því leitinu að festingin fyrir ballansstöngina er ekki alveg á sama stað. Þetta gerði það að verkum að það var undið upp á ballansstöngina og sleit hún alltaf endan úr spyrnunni. NonniBras færði þessa festingu fyrir mig og núna er þetta allt orðið eins og þetta á að vera. Nýir endar komnir á stöngina og allir sáttir. Set myndir af ferlinu hér að neðan.
Ég lét einnig hreinsa hvarfana undan bílnum og setja túbur í staðinn. Hljóðið breyttist reyndar sáralítið. En vonandi að eyðslan og virknin verði betri fyrir vikið.
Læt nokkrar myndir fylgja af bílnum. Þetta eru reyndar svona týpiskar before myndir þar sem bíllinn á eftir að breytast talsvert í útliti. Bjahja felgurnar eru vetrarsett og munu E90 felgurnar sem ég á fara undir hann fljótlega. Einnig verða sett DEPO projector ljós sem fylgdu með honum nema botninn í þeim málaður svartur.


Myndir frá Nonnabras er hann færði festinguna fyrir mig.

Festingin bílstjóramegin, ef lengdin á milli mótorbita og festingar er skoðuð beggja megin þá sést klárlega lengdarmismunurinn.

Farþegamegin




Ég kem með svo frekari myndir af bílnum fljótlega. Margt sem þarf að horfa til núna fljótlega. Það er ein pústgrein brotin sem ég þarf að skipta um, vantar nýjan ABS skynjara, bremsuskynjara og sitthvað fleira.
Svo verður M50 manifold skellt á þennan og E30 á sama tíma. Þetta verður ansi flott combo til að eiga saman
Team M52B28
