Við erum að spá í að endurvekja þennan skemmtilega part af kraftinum aftur og óskum eftir aðilum sem hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum við gerð þessara myndbanda.
Hugmyndin er að fá einhvern hóp til að sjá um þennan hluta kraftsins. Þetta þarf ekki að vera mánaðarlegt myndband sérstaklega og hefur hópurinn sinn hátt á þessu. Það væri þó æskilegt að þetta yrði vandað og skemmtilegt.
Þeir sem hafa áhuga mega endilega senda mér skilaboð, ef einhver fyrirfram ákveðinn hópur hefur áhuga þá er nóg að einn þaðan sendi mér skilaboð um hverjir eru í hópnum.
Fyrir hönd BMWkrafts
Einar Sigurðsson






