Sælir.
Ég þarf að taka aftursætin úr 535i hjá mér til þess að komast að efri festingunum fyrir demparann. Ég er búinn að taka sessuna úr, losa fjórar plastrær, aðrar í neðri hornunum og hinar bakvið armrest púðann í miðjunni. Tók plasthlífarnar utanum beltin efst af líka. Togaði bekkinn að mér og lyfti upp og náði að losa aðeins meira efst en það er eins og að hann siti fastur á höfuðpúðunum. Er búinn að googla þetta aðeins en það er hvergi minnst á að það þurfi að losa höfuðpúðana. Getur verið að ég þurfi bara að taka aðeins meira á þessu?
Ef einhver hérna hefur gert svona þá væru upplýsingar og reynslusögur mjög vel þegnar. Ég hef bara gert þetta á bíl með fold-down sæti sem að þessi er ekki með.
