Ég ímynda mér að flestir hér kannist við hann, enda aksturinn einn og sér er eitthvað sem menn taka eftir
Bíllinn hefur fengið alveg ótrúlegt viðhald hjá síðasta eiganda og "Bloggað" um allt saman á blýfæti.
Ég hef sennilega aldrei lagt á mig eins mikla ransóknarvinnu við kaup á bíl einsog þessum.. Ég er búinn að tala við öll stóru nöfnin í bransanum og þá sem sáu um allt viðhald á honum síðustu ár hér á Akureyri.
Allir voru sammála að þrátt fyrir pirrandi mikinn akstur þá sé bíllinn í topplagi þar sem það skiptir máli, mótor, skipting, bremsur, allir hlutir að innan og utan virka og það er bara ekkert svona, "Þetta ljós kom í gær" eða "þetta hefur bara aldrei virkað" Semsagt góður bíll sem keyrir æðislega og ekkert skrölt.
En hann er reyndar ekki fullkominn, útlislega séð er honum best lýst sem sjúskuðum, Lakkið er frekar slæmt á sumum stöðum og ég þarf að ganga frá hlutum einsog hurðarspjöldum og þannig inni í honum og listum ofl. að utan. Samt hlutir sem ég get dundað í sjálfur og geta ekki verið dýrir eða erfiðir.
Þetta er einsog gefur að skilja bíll sem ég hugsa mér að eiga eitthvað, því ég fór að sjálfsögðu út í þetta vitandi að "gamall" V12 keyrður hátt í 300k selst ekkert á fyrsta degi hversu góður sem bíllinn er
En allavega, ég er rétt búinn að keyra bílinn heim frá því ég eignaðist hann og mun kanski seigja meira frá honum eftir fyrsta bón.
Fyrir þá sem ekki hafa kveikt á því hvaða bíll þetta er læt ég með mynd frá fyrri eiganda.
Og já ég ætla mér að halda áfram með rekstrar bókhaldið um bílinn og jafnvel pósta öllu saman á netið.



En ég held svona heilt yfir að þá hafi ruglið tekist nokkuð vel hjá mér í þetta skiptið.



