gstuning wrote:Nýtt fyrir mér en hvað er að stilla in drif?
er ekki átt við að setja 'rétt' saman drifið svo kambur og pinión (íslenska...?) hafi rétta snertifleti. Vitlaust stillt, t.d. ef allt átak væri á ysta hring kambs, lítið eða engin snerting á miðju eða innri hring, þá myndi drifið hreinlega brotna við mikið áttak.
ég reyndi að finna einhverjar myndir á netinu en fann ekki annað en
þessa þar sem verið er að setja loftlæsingu í Toyota köggul. Það er málað á kambinn og við snúning/áttak slípast málningin af kambinum og snertiflötur sést vél. Rétt samsett er flöturinn eins og sést á myndinni.